Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Ágúst Orri Arnarson skrifar 4. júní 2026 22:02 Andrea kom til Anderlecht frá Breiðabliki í janúar. vísir / sigurjón Andrea Rut Bjarnadóttir varð bikarmeistari á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku en það eitt og sér þykir ekki ásættanlegur árangur hjá belgíska stórliðinu Anderlecht. Liðið fær bara stutt sumarfrí og þarf svo að byrja að undirbúa aðra atlögu að deildarmeistaratitlinum.
Íslendingaliðið Anderlecht vann öruggan 3-0 sigur í bikarúrslitaleiknum um helgina gegn Zulte Waregem og titlinum var vel fagnað í grenjandi rigningu. „Þetta var bara geggjaður dagur og geggjað að enda tímabilið svona, að vinna bikarinn,“ sagði Andrea í viðtali sem var sýnt í Sportpakka Sýnar og má sjá hér fyrir neðan. En þó bikarsigurinn hafi sannarlega verið sætur uppliði Anderlecht ákveðið vonbrigðatímabil, því í fyrsta sinn í átta ár tókst liðinu ekki að vinna deildina og Leuven varð belgískur meistari. „Já þetta er alveg ákveðinn skellur. Klúbburinn setur þann standard að vinna deildina á hverju ári en þetta var mikil samkeppni við Leuven upp á efsta sætið. Þessi tvö lið hafa verið að berjast um deildina en þetta er mikill skellur þetta árið.“ Andrea og Vigdís Lilja Kristjánsdóttir, bikarmeistarar með Anderlecht. anderlecht RSC Eftir þessi vonbrigði var ákveðið að sumarfrí leikmanna yrði með styttra móti í ár. „Já við fáum bara tvær vikur, ekki langt frí. Þeir eru greinilega með alvöru markmið að byrja þetta snemma, endurheimta bikarinn og vinna deildina á næsta ári… Það er bara stutt frí heima. Kannski ekki verið að refsa okkur en þeir vilja gera þetta vel,“ sagði Andrea um undirbúningstímabilið sem hefst hjá henni 15. júní. Og Andrea vonar að þetta beri árangur því markmiðið er að vinna sér inn sæti í íslenska landsliðinu. „Mér finnst ég alveg eiga það skilið en ég er svosem ekkert mikið að velta mér upp úr þessu. Vonandi fæ ég tækifærið ef ég held áfram að standa mig og sýna hvað ég get.“
Mest lesið Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Golf Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Fótbolti Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Enski boltinn Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Fótbolti Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Fótbolti Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Fótbolti „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Arsenal og Liverpool stimpla sig inn í Meistaradeildina. Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Stór varða í langþráðri endurkomu Patriks: „Eitt skref í einu“ Afmælisdagurinn sem aldrei kom Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA Þessir eru tilnefndir sem bestu fótboltamenn heims „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Pablo Escobar útlitið er heitt hjá Betis Hjartaaðgerð McTominay gekk vel Mourinho fékk úðara að gjöf Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Treyjur Liverpool taka breytingum Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Ruglaðist á mótherja og komst að því í miðju viðtali Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Sjá meira