Sport

Heims­meistari hélt að hún væri með tíðaverki en endaði á sjúkra­húsi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ragne Wiklund fagnar heimsmeistaratitli sínum í mars síðastliðnum.
Ragne Wiklund fagnar heimsmeistaratitli sínum í mars síðastliðnum. Getty/Gerrit van Keulen/

Norska skautakonan og heimsmeistarinn Ragne Wiklund var á dögunum lögð inn á sjúkrahús með hraði.

Alvaran rann fljótt upp fyrir Wiklund þegar hún leitaði á bráðamóttöku eftir helgi með mikla verki.

Í samtali við norska ríkisútvarpið segir ríkjandi heimsmeistari í samanlögðum greinum á skautum að hún hafi áttað sig á því að eitthvað væri að á æfingu.

„Ég hélt að þetta væru tíðaverkir,“ sagði Ragne Wiklund.

„Svo ég hjóla nokkrar lotur, en það er svo sárt. Að lokum skil ég að eitthvað er að og þá get ég alveg eins farið á bráðamóttökuna. Þaðan er ég send beint á sjúkrahús og í aðgerð. Þetta magnaðist hratt,“ sagði Wiklund.

Norska skautastjarnan var með bólginn botnlanga sem þurfti að fjarlægja.

Eftir aðgerðina verður Wiklund að búa sig undir æfingahlé.

„Ég verð að vera róleg svo allt geti gróið,“ sagði hún.

Wiklund vann þrenn verðlaun í skautahlaupi á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina í byrjun ársins, tvenn silfurverðlaun og eitt brons.

Hún tryggði sér svo heimsmeistaratitilinn í samanlögðum greinum á skautum á HM í Hollandi í mars. Það gerði hún með því að vinna bæði 3000 metra og 5000 metra skautahlaupið, enda í þriðja sæti í 1500 metra skautahlaupi og ná sjötta besta tímanum í 500 metra skautahlaupi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×