Staða Grindavíkur Bryndís Haraldsdóttir skrifar 5. júní 2026 17:30 Þegar Grindavík var rýmd í nóvember 2023 þurftu um 4.000 manns að yfirgefa heimili sín. Alþingi brást við af ábyrgð og í mikilli pólitískri sátt. Við samþykktum fjölda aðgerða til að styðja við íbúa og samfélagið og vörðum tugum milljarða króna til að hjálpa Grindvíkingum að takast á við fordæmalausar aðstæður. Síðast breyttum við kosningalögum til að tryggja að Grindvíkingar gætu kosið sér bæjarstjórn sem hefði það mikilvæga verkefni að leiða endurreisn bæjarins. Nú hefur nýkjörin bæjarstjórn tekið til starfa og fyrstu skilaboð hennar til stjórnvalda eru skýr. Bæjarstjórnin mótmælir harðlega ákvörðun um að skerða afnotarétt íbúa í húsum sem seld voru Þórkötlu úr 30 dögum niður í 12 daga á mánuði. Að mati bæjarstjórnarinnar eykur þessi ákvörðun óvissu fjölskyldna, dregur úr möguleikum fólks til að búa áfram í Grindavík og setur meðal annars skólahald í bænum í uppnám. Þetta er alvarlegt ákall frá kjörnum fulltrúum Grindvíkinga. Fólkinu sem býr við þessar aðstæður á hverjum degi. Fólkinu sem við treystum fyrir framtíð bæjarins þegar við tryggðum að kosið yrði til bæjarstjórnar þrátt fyrir þær erfiðu aðstæður sem þar ríkja. Ég hvet ríkisstjórnina til að taka þessi skilaboð alvarlega, kalla málið aftur að borðinu og leita þeirrar pólitísku sáttar sem einkenndi viðbrögð Alþingis þegar hamfarirnar dundu yfir. Endurreisn Grindavíkur verður ekki farsæl nema hún byggi á samvinnu, trausti og sameiginlegri sýn. Við treystum Grindvíkingum til að velja sér forystu. Nú verðum við líka að treysta þeirri forystu til að leiða uppbyggingu bæjarins — og stjórnvöld verða að standa með henni, ekki gegn henni. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Grindavík Bryndís Haraldsdóttir Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Þegar Grindavík var rýmd í nóvember 2023 þurftu um 4.000 manns að yfirgefa heimili sín. Alþingi brást við af ábyrgð og í mikilli pólitískri sátt. Við samþykktum fjölda aðgerða til að styðja við íbúa og samfélagið og vörðum tugum milljarða króna til að hjálpa Grindvíkingum að takast á við fordæmalausar aðstæður. Síðast breyttum við kosningalögum til að tryggja að Grindvíkingar gætu kosið sér bæjarstjórn sem hefði það mikilvæga verkefni að leiða endurreisn bæjarins. Nú hefur nýkjörin bæjarstjórn tekið til starfa og fyrstu skilaboð hennar til stjórnvalda eru skýr. Bæjarstjórnin mótmælir harðlega ákvörðun um að skerða afnotarétt íbúa í húsum sem seld voru Þórkötlu úr 30 dögum niður í 12 daga á mánuði. Að mati bæjarstjórnarinnar eykur þessi ákvörðun óvissu fjölskyldna, dregur úr möguleikum fólks til að búa áfram í Grindavík og setur meðal annars skólahald í bænum í uppnám. Þetta er alvarlegt ákall frá kjörnum fulltrúum Grindvíkinga. Fólkinu sem býr við þessar aðstæður á hverjum degi. Fólkinu sem við treystum fyrir framtíð bæjarins þegar við tryggðum að kosið yrði til bæjarstjórnar þrátt fyrir þær erfiðu aðstæður sem þar ríkja. Ég hvet ríkisstjórnina til að taka þessi skilaboð alvarlega, kalla málið aftur að borðinu og leita þeirrar pólitísku sáttar sem einkenndi viðbrögð Alþingis þegar hamfarirnar dundu yfir. Endurreisn Grindavíkur verður ekki farsæl nema hún byggi á samvinnu, trausti og sameiginlegri sýn. Við treystum Grindvíkingum til að velja sér forystu. Nú verðum við líka að treysta þeirri forystu til að leiða uppbyggingu bæjarins — og stjórnvöld verða að standa með henni, ekki gegn henni. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar