Grindavík

Landris heldur áfram í Svartsengi
Landris og jarðskjálftavirkni halda áfram í Svartsengi og hefur virkni verið stöðug síðustu vikur. Kvikusöfnun í hólfinu undir Svartsengi hefur haldið áfram, en ekki hafa orðið breytingar sem gefa tilefni til endurskoðunar á hættumati.

Sænsk landsliðskona til Grindavíkur
Grindavík hefur samið við sænsku landsliðskonuna Ellen Nyström um að leika með liðinu á komandi tímabili í Bónus-deild kvenna í körfubolta.

Grindavík sigursæl erlendis
Þættirnir Grindavík hafa farið sigurför um heiminn en serían var í fjórða sinn að vinna til verðlauna í síðustu viku á hátíðinni Cannes Film Awards.

„Langflestir Grindvíkingar búa utan Grindavíkurbæjar“
Aðalheiður Jónsdóttir, teymisstjóri neyðarvarna hjá Rauða krossinum, segir samtökin haf einbeitt sér að því að styðja við Grindvíkinga þar sem þeir eru og búa. Langflestir þeirra búi utan bæjarins. Íbúi í Grindavík gagnrýndi í dag að styrkir færu aðeins til verkefna utan bæjarins. Aðalheiður segir standa til að funda með bæjarstjórn um áframhaldandi stuðning.

Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína
Íbúi í Grindavík skilur ekki af hverju styrkir Rauða Krossins til Grindvíkinga vegna náttúruhamfara renna aðeins til verkefna utan bæjarins. Styrkurinn kemur frá Rio tinto og var honum ætlað að styðja við samfélagið í Grindavík í kjölfar eldsumbrota síðustu ára.

Áætla að húsnæði á Íslandi sé verulega vantryggt fyrir bruna
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS, segir húsnæði almennt verulega vantryggt fyrir bruna á Íslandi. Það kemur fram í nýju mati stofnunarinnar á brunabótatryggingum Íslendinga. Í tilkynningu kemur fram að athugunin hafi verið sett af stað í kjölfar endurmats á brunabótamat í Grindavík vegna uppkaupa ríkisins á eignum í Grindavík.

Opinn fundur HMS um endurmat brunabótamats
HMS boðar til opins fundar í dag klukkan 9:00. Tilefni fundarins er útgáfa Vegvísis að brunabótamati 2025 - bætt framkvæmd brunabótamats.

Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík
Atvinnuvegaráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Matvælastofnunar um að sekta sauðfjárbónda í Grindavík um 240 þúsund krónur fyrir að hafa haldið sauðfé í bænum og brotið gegn reglugerðum um velferð dýra. Kindurnar gengu lausar um sprungusvæði og fóru um tún sem almannavarnir höfðu flokkað hættulegt vegna stórrar sprungu.

„Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum
Tímamót urðu í málefnum barna á Íslandi í dag þegar Farsældarráð Suðurnesja var formlega stofnað. Bæjarstjórar þriggja sveitarfélaga sem standa að stofnun ráðsins segja það sögulegt skref fyrir landshlutann.

Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til
Allir þrír staðirnir hérlendis sem skartað hafa hinni eftirsóttu Michelin-stjörnu halda stjörnunni milli ára. Tvær breytingar eru þó frá síðastu Michelin-vegahandbók en Óx hlaut græna stjörnu ásamt þeirri hefðbundnu og Hosiló bætist á lista yfir veitingastaði sem dekkjaframleiðandinn mælir með.

Tæpur helmingur ætlar að flytja aftur til Grindavíkur
Tæplega helmingur Grindvíkinga sem selt hafa Þórkötlu eignir í bænum, telur líklegt að hann snúi aftur þegar eldsumbrotin eru yfirstaðin. Yngra fólk er líklegra til að vilja snúa aftur en eldra eða sex af hverjum tíu. Framkvæmdastjóri Þórkötlu segir ánægjulegt að sjá hversu margir hyggja á endurkomu.

Áframhaldandi landris í Svartsengi
Áframhaldandi landris mælist í Svartsengi en það hefur hins vegar hægt á sér. Líkur á eldgosi munu aukast með haustinu, ef kvikusöfnun heldur áfram. Aðeins rúmur helmingur þess kvikumagns sem var í hólfinu undir Svartsengi í apríl hefur safnast aftur.

Taka húfurnar úr sölu: Harma að „misheppnað grín“ hafi komið illa við fólk
Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík hefur ákveðið að taka umdeildar derhúfur sem á stendur „Make Grindavík Great Again“ úr sölu. Félagið harmar umræðuna sem salan á húfunum hefur skapað og segir um misheppnað grín að ræða.

„Erum ekki að lýsa yfir stuðningi við Trump“
Formaður björgunarsveitarinnar Þorbjarnar í Grindavík segir félagið ekki lýsa yfir stuðningi við Donald Trump Bandaríkjaforseta með umdeildum derhúfum sem það setti í sölu í gær. Staðgengill upplýsingafulltrúa Landsbjargar segir að einingar innan félagsins séu sjálfstæðar en að málið verði skoðað.

Björgunarsveit selur derhúfur í stíl Bandaríkjaforseta
Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík tók upp á setja upp rauðar derhúfur í stíl Bandaríkjaforseta á landsþingi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Í stað slagorð forsetans stendur á húfunum „Make Grindavík Great Again.“

Landris mælist áfram í Svartsengi
Landris mælist áfram í Svartsengi og miðað við hraða kvikusöfnunar síðustu vikur fara líkur á nýju eldgosi að aukast þegar líða fer á haustið. Jarðskjálftavirkni við kvikuganginn fer áfram dvínandi og mun uppfært hættumat að óbreyttu gilda til 18. júní.

Sigríður svarar gagnrýni á störf lögreglunnar á Suðurnesjum
Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri svaraði gagnrýni Úlfars Lúðvíkssonar, fyrrverandi lögreglustjóra, í tölvupósti til starfsmanna embættisins á þriðjudag. Þar sagði hún Úlfar ekki hafa sinnt sameiginlegu verkefni lögreglunnar og tollsins um farþegaeftirlit og því hafi samstarfinu verið rift.

Er ekki tími til kominn að tengja?
Þann 29. maí, á uppstigningardag, fór rafmagnið af Grindavík í sjö klukkustundir. Ekki vegna eldgoss. Ekki vegna óviðráðanlegra náttúruafla. Heldur vegna þess að gamall rafmagnsstrengur, illa frágenginn í jörðu, gaf sig þegar álag kom á jarðveginn vegna jarðvinnu.

Dró vélarvana fiskibát að landi nærri Grindavík
Oddur V Gíslason, björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Grindavík, var sent út í morgun eftir að Landhelgisgæslunni barst aðstoðarbeiðni frá litlum fiskibát sem naut ekki lengur vélarafls suðaustur af Grindavík. Þetta var annan daginn í röð sem áhöfn Odds V er kölluð út en allt árið í fyrra var aðeins eitt útkall á björgunarskip í Grindavík.

Grindavík sækir besta leikmann Hamars/Þórs
Lið Grindavíkur í Bónus-deild kvenna heldur áfram að styrkja sig því í kvöld tilkynnti liðið um önnur félagaskiptin á stuttum tíma.

Dregur vélarvana bát að landi
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar boðaði í morgun áhöfn björgunarskipsins Odds V. Gíslasonar í Grindavík út vegna lítils fiskibáts sem var í vandræðum um þrjár sjómílur suður af Hópsnesi. Báturinn naut ekki vélarafls og var óskað eftir aðstoð við að draga bátinn að landi.

Grindavík lifir
Grindavík stendur enn, með hjarta sem slær af ómælanlegum lífsvilja og seiglu. Þrátt fyrir að eldstöðin andi djúpt og götur bæjarins minni óneitanlega á senu úr kvikmynd. Kvikmynd sem enginn óskaði sér að leika í.

Fyrsta mastrið í Suðurnesjalínu 2 risið
Fyrsta mastur Suðurnesjalínu 2 reis við Kúagerði í morgun. Alls munu 86 mastur rísa vegna lagningar línunnar og markaði framkvæmdin í morgun því tímamót í verkefninu.

Líkur á eldgosi aukast með haustinu
Áframhaldandi landris mælist í Svartsengi, sem bendir til áframhaldandi kvikusöfnunar á svæðinu. Haldist hraði landrissins svipaður og hann hefur verið undanfarnar vikur, áætlar Veðurstofa Íslands að líkur á kvikuhlaupi eða eldgosi aukist þegar líða fer á haustið.

Erfitt að flytja tímabundið heim í tóm hús
Grindvíkingar, sem ætla að búa í bænum í sumar segja tilraunaverkefni um búsetu þar jákvætt. Mörgum gæti þó reynst erfitt að snúa aftur vegna töluverðar óvissu og kostnaðar, þar sem margir þyrftu þá að reka tvö heimili.

Grindvíkingar fá að gista í húsunum sem þeir seldu
Frá og með 28. maí munu þeir sem gert hafa svokallaðan hollvinasamning um sínar gömlu eignir í Grindavík einnig geta gist í þeim. Um er að ræða tímabundið verkefni til reynslu í sumar.

Úlfar heldur fullum launum í heilt ár
Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, heldur fullum launum út skipunartíma sinn og í sex mánuði til viðbótar. Hann verður því á launum til og með 15. maí á næsta ári.

Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi
Úlfari Lúðvíkssyni var boðið starf lögreglustjórans á Austurlandi á fundi með ráðherra án þess að þurfa að sækja starfið gegn því að hann myndi láta af störfum sem lögreglustjóri á Suðurnesjum. Úlfar afþakkaði það á fundi og lét svo af störfum sem lögreglustjóri. Frá þessu er greint á vef mbl.is og er vísað í fundargerð af fundi ráðherra og lögreglustjórans.

Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík
Stjórnsýslufræðingur telur líkur á að afsögn Úlfars Lúðvíkssonar fyrrverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum tengist útlendingapólitík. Hann segir framvinduna undanfarna daga óvenjulega.

Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti
Prófessor í stjórnmálafræði við HA segir skiljanlegt að lögreglustjórinn á Suðurnesjum líti svo á að hann hafi verið rekinn í ljósi viðtekinnar venju. Lögreglustjórinn lét sjálfur af embætti á miðnætti eftir að dómsmálaráðherra sagði honum að staða lögreglustjórans yrði auglýst í haust og að samningur hans yrði ekki endurnýjaður. Margrét Kristín Pálsdóttir hefur verið skipuð tímabundið í embættið.