Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Hólmfríður Gísladóttir skrifar 5. júní 2026 22:29 Nærstaddir létu sér fátt um finnast þótt eldurinn logaði skammt frá. Maggi Snorrason Átta Íslendingar urðu vitni að því þegar eldur kom upp í bifreið í Rotterdam nú í kvöld. Atvikið átti sér stað nærri Blaak-samgöngumiðstöðinni. Fólkið telur líklegt að um íkveikju hafi verið að ræða. „
Það voru einhverjir strákar þarna hettuklæddir,“ segir Sigurþór Maggi Snorrason, sem sat á bar með vinum sínum þegar atvikið átti sér stað. „Svo kviknaði í bílunum, tveimur bílum, og það komu sprengingar frá þeim.“ Svo virðist sem eldur hafi komið upp í einni bifreið en hann hafi svo borist í næsta bíl. Að sögn Sigurþórs var engin hætta á ferðum og nærstaddir létu uppákomuna ekki mikið á sig fá. Viðbragðsaðilar mættu á staðinn, slökktu eldinn á skömmum tíma og girtu svæðið af. „Þetta var nú meira forvitni,“ segir Sigurþór, spurður að því hvort þeim hafi brugðið við. „Þetta er ekki eitthvað sem maður sér oft.“ Sigurþór er í námi í bænum Delft en vinkona hans býr í Rotterdam. Hann segir atvik sem þetta mögulega tíðari í stórborgum en þar sem hann býr en þó hafi nokkuð verið um það nýverið að kveikt sé í bifreiðum, séstaklega í tengslum við mótmæli hægri öfgamanna.
Holland Íslendingar erlendis Mest lesið Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Innlent Fagnað á götum Kabúl Erlent Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Erlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Fannst hann ekki geta haldið áfram Erlent Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Innlent Fleiri fréttir Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump Sjá meira