Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Sindri Sverrisson skrifar 8. júní 2026 11:02 Lionel Messi og Hörður Björgvin Magnússon mættust á HM í Rússlandi 2018 og gætu mæst aftur á Jordan-Hare Stadium í Auburn í Alabama annað kvöld. Getty/Matteo Ciambelli Lionel Messi endurnýjar kynni sín við íslenska fótboltalandsliðið í Alabama annað kvöld, í síðasta leik Argentínu fyrir titilvörnina á HM en mótið hefst á fimmtudaginn. „Gott orðspor“ Íslands hefur skilað sér í flottum boðum um vináttulandsleiki í ár en ekkert toppar leik við sjálfa heimsmeistarana í generalprufu þeirra fyrir HM.
Í ljósi þess að Ísland situr í 75. sæti heimslista FIFA og er fallið niður í C-deild Þjóðadeildarinnar vekur kannski athygli hve flottir leikir hafa staðið liðinu til boða. Fyrir tveimur árum spilaði Ísland við lið Englands (4. sæti) og Hollands (8.), í fyrra voru leikir við Skotland (42.) og Norður-Írland (70.), og í ár hefur liðið þegið heimsóknir til Mexíkó (14.), Kanada (30.) og Japans (18.), auk þess að mæta nú Argentínu, efsta liði heimslistans. „Ég held að við séum bara mjög samkeppnishæfir. Úrslitin hafa ekki endilega verið þau bestu í heimi síðasta árið en það eru allir og engir að greina þessa leiki í ræmur, og vita alveg hvað við stöndum fyrir,“ sagði Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari. Ísland mætti Japan á uppseldum leikvangi í Tókýó 31. maí, þar sem Koki Ogawa skoraði eina mark leiksins með skalla undir lokin.Getty/Koji Watanabe Vísir falaðist einnig eftir svörum frá KSÍ um hvernig þessir leikir hefðu komið til og fékk skriflegt svar frá Jörundi Áka Sveinssyni, yfirmanni knattspyrnumála: „Ísland hefur byggt upp gott orðspor“ „Þetta er í raun blanda af nokkrum þáttum. Leikirnir koma að mestu til í gegnum umboðsskrifstofur sem við höfum átt mjög gott samstarf við í gegnum árin, og við vinnum oft með sömu skrifstofu í flestum verkefnum. Samskipti og tengsl starfsfólks og stjórnarfólks KSÍ við fulltrúa annarra knattspyrnusambanda, sem myndast á fundum erlendis og þegar hist er í kringum landsleiki, skipta miklu máli. Ástæðan fyrir því að við fáum svona sterka andstæðinga er að Ísland hefur byggt upp gott orðspor. Þessar stærri þjóðir hafa almennt verið ánægðar með leikina gegn okkur og aðrir hafa séð að við gefum yfirleitt mjög erfiða leiki. Leikstíllinn okkar spilar þar inn í líka. Við höfum svo verið frekar opin fyrir því að fara verkefni sem fela í sér flókin ferðalög, sem hjálpar líka til,“ segir Jörundur. Orri Steinn Óskarsson skoraði tvö mörk gegn Kanada á BMO-leikvanginum í Toronto í lok mars. Kanada-menn verða gestgjafar á HM sem hefst á fimmtudag, ásamt Mexíkóum og Bandaríkjamönnum.Getty/Indrawan Kumala Leiða má að því líkum að HM-þjóðir vilji mæta Íslandi til að undirbúa sig fyrir ákveðinn leikstíl. Þannig gæti Argentína mögulega séð leik við Ísland sem undirbúning fyrir leik sinn við Austurríki eða Japan séð eitthvað líkt með Íslandi og Svíþjóð eða Hollandi. Engir heimaleikir vegna kostnaðar Eins og Jörundur nefnir er KSÍ einnig opnara fyrir því en mörg sambönd að spila útileiki og þiggja boð um löng ferðalög. Leikir við Japan í Tókýó og við Bandaríkin í Alabama í kjölfarið kalla á ferðalag í kringum hnöttinn en það borgar sig fyrir KSÍ frekar en að bjóða upp á heimaleik. Síðasti vináttulandsleikur íslenska karlalandsliðsins á heimavelli var sumarið 2018, fyrir fyrsta og eina heimsmeistaramót Íslands til þessa. „Fjárhagslega er hvert verkefni mismunandi. Í mörgum tilfellum eru einhverjar greiðslur frá umboðsskrifstofum eða samböndum sem hjálpa til við að dekka kostnaðinn, en samningarnir eru mjög breytilegir eftir leikjum. Val á mótherjum snýst líka um hvað þjálfarateymið leggur upp með hverju sinni. Undanfarin ár höfum við viljað fá sem sterkasta leiki – jafnvel blöndu af einni mjög sterkri þjóð og einni sem er nær okkur í styrkleika. Það gengur ekki alltaf upp. Aðrar þjóðir velja frekar að spila við lið sem eru á svipuðu eða lægra eða hærra stigi. Varðandi heimaleiki þá snýst það að stórum hluta um kostnað. Þegar við förum út reynum við fá hluta eða allan kostnað greiddan, og það sama gildir yfirleitt þegar lið koma hingað. Þess vegna hefur þetta oft orðið þannig að fleiri vináttuleikir fara fram erlendis,“ segir Jörundur. Vill ekki lenda í sömu gryfju og Svíar Eins og Jörundur nefnir þá telja Arnar Gunnlaugsson og hans fólk í þjálfarateymi Íslands að það borgi sig að fá sem flesta leiki við sterkar þjóðir núna. „Þegar allt kemur til alls þá erum við á sterkri leið. En ég og allir eru ósáttir við hvað við erum að fá lítið út úr leikjunum,“ segir Arnar. „Það er eitt sérstaklega gott við að spila þessa stóru leiki því við förum svo í C-deildina í haust, þar sem við erum að spila við lið í kringum okkur á FIFA-listanum. Það gerðist hjá Svíunum, sem fóru í C-deildina, að þeir gleymdu hvernig þeir áttu að spila gegn betri liðunum og fóru svo í undankeppni HM og gátu ekki rassgat. Þeir komust svo bara á HM gegnum C-deildina. Þetta er tricky, allt öðruvísi leikir, svo við þurfum að halda sterkt í þessar minningar frá því að spila á móti Kanada, Japan og Argentínu, og koma svo sterkir til leiks þegar undankeppni EM byrjar á næsta ári,“ segir Arnar. Leikur Íslands og Argentínu fer fram annað kvöld og hefst klukkan 1 eftir miðnætti að íslenskum tíma, í beinni útsendingu á Sýn Sport.
Landslið karla í fótbolta HM 2026 í fótbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir Lillestrøm - Real Sociedad | Evrópu Orri mætir til Noregs Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Sjá meira