Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 8. júní 2026 12:45 Úlfar Lúðvíksson gefur ekkert upp um það hvort hann ætli að sækja um embættið. vísir/vilhelm Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hefur verið auglýst til umsóknar. Þekktum nöfnum hefur verið kastað fram nú þegar leit er hafin að arftaka Höllu Bergþóru Björnsdóttur.
Halla Bergþóra, sem sinnt hefur embættinu undanfarin ár, tók við embætti ríkislögreglustjóra þann 20. apríl og var staða hennar auglýst í kjölfarið. Í síðasta þætti Þjóðmála sem kom út á föstudaginn var embættið til umræðu. Þar sagðist Gísli Freyr Valdórsson þáttastjórnandi hafa heyrt að Grími Hergeirssyni, lögreglustjóra á Suðurlandi, hefði verið boðin staðan. „Þetta er maður búinn að fá úr ýmsum áttum að Grími Hergeirssyni hafi verið boðið starfið en hafnað því,“ sagði Gísl Freyr í þættinum. Grímur gaf lítið fyrir slíkt tal í samtali við fréttastofu. En ætlarðu að sækja um starfið? „Ég er ekki með nein sérstök áform um það,“ sagði Grímur og spurði fréttamann í kjölfarið léttur í bragði hvenær umsóknarfresturinn rynni út. Grímur Hergeirsson, lögreglustjóri á Suðurlandi, hefur verið settur ríkislögreglustjóri.Vísir/Anton Brink Grímur var á meðal fjögurra sem sóttu um embætti ríkislögreglustjóra í desember. Hinir voru Birgir Jónasson sem þá var settur fangelsismálastjóri, Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur, aðstoðarsaksóknari og staðgengill lögreglustjóra og Halla Bergþóra Björnsdóttir sem fékk starfið. „Kemur í ljós“ Þá hefur Úlfar Lúðvíksson, fyrrum lögreglustjóri á Suðurnesjum, verið orðaður við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Hann var sömuleiðis kátur þegar fréttastofa sló á þráðinn og spurði hvort hann ætlaði að sækja um stöðuna. „Kemur í ljós,“ sagði Úlfar og gaf ekkert meira upp. Umsóknafrestur rennur út þann 26. júní og hafa menn því nægan tíma til að velta málum fyrir sér.
Lögreglan Stjórnsýsla Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira