Með áhyggjur af að mæta Íslandi en Messi mun spila Sindri Sverrisson skrifar 9. júní 2026 11:30 Lionel Messi kom ekkert við sögu þegar Argentína mætti Hondúras um helgina. Getty/Tim Warner Lionel Scaloni, þjálfari heimsmeistara Argentínu, staðfesti á blaðamannafundi í gær að Lionel Messi myndi spila í vináttulandsleiknum gegn Íslandi í kvöld. Hann er hins vegar áhyggjufullur fyrir leikinn vegna meiðslastöðunnar í argentínska hópnum.
Messi er að komast af stað eftir tognun í læri og mun spila sinn fyrsta leik síðan 24. maí, þegar Argentína mætir Íslandi í Auburn í Alabama klukkan 1 í nótt að íslenskum tíma. Þetta verður síðasti leikur Argentínu áður en titilvörnin á HM hefst með leik við Alsír aðfaranótt 18. júní, og er leikurinn sýndur á Sýn Sport. „Já, hann mun spila,“ staðfesti Scaloni á blaðamannafundi í gær. „Ég veit þó ekki enn hve margar mínútur, ég á enn eftir að tala við hann eftir æfinguna í dag. Við sjáum til hve margar mínútur henta til að forðast að taka áhættu. En hann mun spila eitthvað,“ sagði Scaloni og bætti svo við, í löngu máli, að Messi yrði áfram í risavöxnu hlutverki í argentínska liðinu á HM. "MESSI VA A SUMAR MINUTOS" 🔟Lionel Scaloni confirmó que el capitán de la Albiceleste jugará en el amistoso de este martes ante Islandia pensando en el #MundialEnDSPORTS.#DSPORTSNoticiasLite Tarde. pic.twitter.com/hc9ROpI7aV— DSPORTS (@DSports) June 8, 2026 En það er ekki bara Messi sem verið hefur að glíma við meiðsli og hefur Scaloni þungar áhyggjur af stöðunni. Ekki sé hins vegar hægt að hætta við leikinn við Ísland en af svörum Scaloni í gær að dæma hefði hann kosið það. Hefur áhyggjur af að leikmenn sleppi heilir á húfi frá leiknum „Í dag hef ég áhyggjur af leiknum á morgun, því hann er mikill þröskuldur. Við verðum að spila hann og, hvort sem manni líkar betur eða verr, þá verður maður að tefla fram strákunum sem verða á HM. Og þegar ég sé allt sem er að gerast, þá hef ég áhyggjur af því. Ef þessi leikur væri ekki, því við ætlum að gefa allt í hann, þá hefðum við mun meiri ró til að undirbúa okkur fyrir leikinn gegn Alsír. En þegar svona leikir eru skipulagðir, þá býst maður aldrei við að staðan verði svona, með þessari óheppni sem við höfum lent í með þessa stráka sem eru ekki 100% heilir. Og ég hef áhyggjur af því að spila leikinn og að þeir klári hann heilir á húfi. Ef við klárum leikinn án vandræða, þá held ég að við verðum í góðum málum miðað við allt og allt. Ég hef enga ástæðu til að kvarta. En við eigum enn eftir að spila leikinn,“ sagði Scaloni í gær. Markvörðurinn Emiliano Martínez braut bein í tveimur fingrum í upphitun fyrir úrslitaleik Evrópudeildarinnar með Aston Villa 20. maí en er á batavegi þó að hann geti ekki mætt Íslandi. Miðvörðurinn Leonardo Balerdi meiddist í kálfa og missir af HM, og þeir Julián Álvarez og Leandro Parades hafa samkvæmt argentínskum miðlum verið að æfa einir en ekki með liðinu, vegna minni háttar meiðsla. Nico Paz, Nahuel Molina og Gonzalo Montiel hafa einnig verið meiddir en geta spilað í kvöld að sögn Scaloni. Leikur Argentínu og Íslands hefst klukkan 1 í nótt að íslenskum tíma og er sýndur á Sýn Sport.
HM 2026 í fótbolta Landslið karla í fótbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir Lillestrøm - Real Sociedad | Evrópu Orri mætir til Noregs Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Sjá meira