Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Árni Sæberg skrifar 9. júní 2026 11:58 Vilhjálmur Birgisson hefur áhyggjur af stöðunni. vísir/Vilhelm Formaður Starfsgreinasambandsins hefur miklar áhyggjur af ákvörðun forsvarsmanna Elkem um að rifa seglin verulega í sumar vegna verndarráðstafana Evrópusambandsins vegna járnblendis. Ákvörðunin komi til með að hafa vel launuð sumarstörf af tugum ungmenna.
Þetta sagði Vilhálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandins, í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Líkt og Vísir greindi frá í gær hafa forsvarsmenn Elkem ákveðið að hafa slökkt á stærsta ofni kísiljárnsverksmiðju félagsins í þrjá mánuði í sumar. Þetta er gert vegna verndarráðstafana Evrópusambandsins vegna kísilmálma. Með því að draga úr framleiðslunni yfir sumartímann getur félagið haldið öllu fastráðnu starfsfólki í vinnu en lítið sem ekkert verður ráðið í sumarstörf. Vilhjálmur segir að ákvörðunin hafi að einhverju leyti verið viðbúin þar sem verndarráðstafanirnar hafi leikið Elkem grátt undanfarið, sem og versnandi samkeppnisskilyrði. Einn af burðarstólpum Akurnesinga „Þetta hefur áhrif á afleysingaþörf fyrirtækisins, sumarafleysingar fyrir tugi ungra skólanema, ef þannig má að orði komast, sem hafa reitt sig á þessi störf yfir sumartímann. Þetta eru vel launuð störf, þannig að það er alveg ljóst að hér er um umtalsvert fjárhagslegt tjón að ræða hjá þeim sem hafa reitt sig á þessi störf. Þetta fyrirtæki hefur verið einn af burðarstólpum okkar Akurnesinga allt frá árinu 1997,“ segir Vilhjálmur. Þá hafi samkeppnisstaða fyrirtækja í orkusæknum iðnaði almennt farið versnandi gagnvart samkeppnisaðilum erlendis en annað slíkt, Norðurál á Grundartanga, er einnig mikilvægur vinnustaður Akurnesinga. „Núna eru þessir ETS-losunarkvótar að skella á þessi fyrirtæki líka af fullum þunga, þannig að það er dálítið þungt undir fæti og ég hef verulegar áhyggjur af þessu og ég tala nú ekki um þessa verndartolla sem Elkem er að lenda núna í.“ Fyrirtækin hefðu ekki hafið rekstur við núverandi ástæður Vilhjálmur segir að sjálfsagt hefðu stjórnvöld getað komið til móts við Elkem við þær aðstæður og mikilvægt sé að muna að þegar fyrirtæki á borð við Elkem og Norðurál ákváðu að fjárfesta í rekstri á Íslandi, með tilheyrandi mikilli og góðri atvinnu, hafi það verið gert á grundvelli þess að stjórnvöld sköpuðu fyrirtækjunum góð rekstrarskilyrði. „Trúðu mér, ekkert einasta þessara fyrirtækja myndi taka ákvörðun um að hefja starfsemi hérna núna við þau rekstrarskilyrði sem eru í dag.“
Verndarráðstafanir ESB vegna járnblendis Akranes Hvalfjarðarsveit Evrópusambandið Stóriðja Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Fleiri fréttir Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Sjá meira