Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri á Akranesi, segir allt of stuttan fyrirvara á sjö vikna næturlokun Hvalfjarðargangnanna. Klukkan 21.30 í kvöld var göngunum lokað vegna viðhalds. Þau verða lokuð til klukkan sex. Næturlokunin stendur til 29. maí. Tilkynnt var um þessa sjö vikna næturlokun þann 2. apríl. Innlent 7.4.2026 22:47
Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Hvalfjarðargöngin verða lokuð sex daga vikunnar frá klukkan hálf tíu á kvöldin til klukkan sex á morgnana í rúmar sjö vikur. Lokunin hefst næsta þriðjudag, 7. apríl, en hún er vegna þess að það á að endurnýja lýsinguna í göngunum. Innlent 3.4.2026 13:18
Kristinn ekki bænheyrður Hæstiréttur mun ekki taka fyrir mál Kristins Jens Sigurþórssonar, fyrrverandi prests í Saurbæjarprestakalli á Hvalfjarðarströnd, gegn Þjóðkirkjunni. Hann fór fram á skaðabætur eftir að prestakall hans var lagt niður árið 2019 og um leið embætti hans. Landsréttur sýknaði kirkjuna af kröfum Kristins í nóvember og vildi hann í kjölfarið áfrýja til Hæstaréttar. Innlent 12.3.2026 15:59
Verður Hvalfjörður gerður að einni stærstu rotþró landsins? Í Skipulagsgátt stjórnvalda liggur nú til umsagnar umhverfismatsskýrsla vegna fyrirhugaðs 28.000 tonna svokallaðs landeldis Aurora fiskeldis í Hvalfirði. Um er að ræða aðila sem hafa verið áberandi í sjókvíaeldi hér á landi, með fjármagn og rekstrarlíkan sem að stórum hluta á rætur að rekja til Noregs. Skoðun 26. desember 2025 07:02
Kirkjan skuldar Kristni ekki eftir allt saman Landsréttur sýknaði í dag Þjóðkirkjuna af kröfum Kristins Jens Sigurþórssonar, fyrrverandi prests í Saurbæjarprestakalli á Hvalfjarðarströnd, og sneri þar með við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði dæmt kirkjuna skaðabótaskylduna. Innlent 27. nóvember 2025 22:25
Vilja vinna magnesíummálm úr íslenskum sjó Nýsköpunarfyrirtæki með stór áform um magnesíumvinnslu úr sjó stefnir að því að prófa framleiðsluna í fyrsta skipti hér á landi á næsta ári. Hvarfatankur sem íslenskur verkfræðingur hefur þróað á að vera lykilinn að því að vinna málminn með mun umhverfisvænni og skilvirkari hætti en tíðkast hefur til þessa. Viðskipti innlent 26. nóvember 2025 10:33
Treystir á að Norðurál borgi Forstjóri Orkuveitunnar segir hegðun Norðuráls mikil vonbrigði en fyrirtækið hefur sagst ekki ætla að greiða fyrir orku sem það nýtti ekki eftir bilanir á Grundartanga. Bæði hann og borgarstjóri ætlast þó til þess að Norðurál greiði á endanum. Innlent 25. nóvember 2025 14:16
Hegðun Norðuráls vonbrigði og Orkuveitan fari fram á fulla greiðslu Norðurál hefur tilkynnt Orkuveitunni um greiðslufall vegna endurtekinna bilana í álveri þess á Grundartanga. Orkuveitan gerir ráð fyrir lægri rekstrarhagnaði í ár vegna þessa og að arðgreiðslur lækki um tvo milljarða króna á næsta ári. Forstjóri Orkuveitunnar gagnrýnir aðgerðir Norðuráls og segir fyrirtækinu bera að greiða fyrir alla umsamda orku óháð því hvort hún sé nýtt. Viðskipti innlent 24. nóvember 2025 17:30
„Varnarsigur“ að fá inn texta um samráð um áhrif tollanna Forstjóri Elkem á Íslandi lýsir því sem varnarsigri að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætli að eiga í samráði við íslensk og norsk stjórnvöld um áhrif verndartolla á kísilmálm. Áhrif aðgerðanna á fyrirtækið ráðist af viðbrögðum markaða. Viðskipti innlent 18. nóvember 2025 12:13
Vonar að frestun fundarins marki stefnubreytingu Forstjóri Elkem á Íslandi segir mikla óvissu ríkja um verndarráðstafanir Evrópusambandsins á íslenskan og norskan kísilmálm og lítið sé hægt að geta sér til um ákvörðun sambandsins. Raungerist ráðstafanirnar hafi hún mestar áhyggjur af getu til að bregðast við áföllum á öðrum mörkuðum. Viðskipti innlent 17. nóvember 2025 12:51
Fundinum mikilvæga frestað Fundi þar sem greiða átti atkvæði um tillögu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um verndarráðstafanir vegna kísilmálms hefur verið frestað fram á mánudag. Samkvæmt tillögu framkvæmdastjórnarinnar verða íslenskir og norskir framleiðendur kísilmálms ekki undanþegnir verndarráðstöfununum. Viðskipti innlent 14. nóvember 2025 15:53
Grafalvarleg staða Grafalvarleg staða er að teiknast upp vegna bilunarinnar hjá Norðuráli, segir formaður Verkalýðsfélags Akraness. Samkvæmt nýjustu áætlunum fyrirtækisins er ekki gert ráð fyrir að framleiðsla verði komin í fullan gang fyrr en eftir ár. Viðskipti innlent 7. nóvember 2025 13:06
Gætu flýtt fyrir með því að gera við biluðu spennana Fulltrúar Norðuráls skoða nú möguleikann á því að gera við spenna sem biluðu í síðasta mánuði og nota þá tímabundið þar til nýir fást. Áætlað er að biðin eftir nýjum spennum gæti tekið allt að ár. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um uppsagnir starfsmanna vegna ástandsins. Viðskipti innlent 7. nóvember 2025 08:24
Telja viðgerð geta tekið allt að ár Forsvarsmenn Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls, telja að viðgerð vegna alvarlegrar bilunar í álverinu á Grundartaka gæti tekið allt ellefu til tólf mánuði. Þangað til bilunin hefur verið löguð er framleiðslan í álverinu einungis þriðjungur af því sem hefðbundið er. Viðskipti innlent 6. nóvember 2025 23:45
Engar uppsagnir í farvatninu Enn sem komið er eru engin áform uppi um uppsagnir starfsmanna Norðuráls á Grundartanga, þrátt fyrir alvarlega bilun sem kom upp í verksmiðjunni í síðustu viku. Þá stendur ekki annað til en að verksmiðjan verði rekin á fullum afköstum þegar viðgerðum hefur verið lokið. Innlent 30. október 2025 06:54
Línur gætu skýrst hjá Norðuráli í næstu viku Afleiðingar bilunar í verksmiðju Norðuráls á Grundartanga gætu byrjað að komast á hreint í næstu viku ef línur skýrast þá um hvenær nýr búnaður fæst til landsins. Viðskipti innlent 27. október 2025 10:24
Verðmætasköpunarlaust haust Forsætisráðherra hefur frá fyrsta degi ítrekað sagt að efnahagsmálin séu áherslumál vinstri stjórnarinnar númer eitt, tvö og þrjú hjá ríkisstjórninni. Í humátt hafa svo fylgt frasar á borð við það að ríkisstjórnin muni „gera meira hraðar“ ef árangurinn lætur á sér standa. Skoðun 24. október 2025 11:32
„Atvinnulífið er sannarlega að kólna“ Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins, segir stöðuna á Grundartanga grafalvarlega, og fyrir samfélagið í heild. „Norðurál er eitt stærsta útflutningsfyrirtæki þjóðarinnar og útflutningsverðmætin sem tapast geta verið allt að sex milljarðar á mánuði,“ segir Sigurður sem fór yfir málið í kvöldfréttum Sýnar í kvöld. Viðskipti innlent 23. október 2025 21:00
„Þá erum við að tala um 60 milljarða í töpuðum útflutningstekjum“ Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir félagsfólk kvíðið vegna stöðu Norðuráls á Grundartanga. Óljóst er hve langan tíma mun taka að koma framleiðslu fyrirtækisins í fullan gang á ný og forsætisráðherra segir stöðuna grafalvarlega. Innlent 23. október 2025 19:28
Viðgerð muni taka einhverja mánuði Forstjóri Norðuráls segir mikið tjón blasa við eftir að starfsemi fyrirtækisins var stöðvuð í stórum hluta álversins á Grundartanga í gær. Hann segir einhverja mánuði þar til starfsemi verði komin í eðlilegt horf á ný. Innlent 22. október 2025 17:50
Norðurál stendur undir um fjórtán prósent af öllum tekjum Orkuveitunnar Norðurál á Grundartanga, sem þarf núna að óbreyttu að stöðva framleiðsluna um tvo þriðju um margra mánaða skeið vegna bilunar, keypti meðal annars raforku af Orkuveitu Reykjavíkur fyrir samtals um níu milljarða í fyrra, en fyrirtækið er sömuleiðis stór viðskiptavinur hjá HS Orku og Landsvirkjun. Innherji 22. október 2025 16:11
Skynjar kvíða og ótta meðal starfsmanna Formaður Verkalýðsfélags Akraness skynjar kvíða og ótta meðal starfsmanna Norðuráls eftir að upp kom bilun í búnaði. Tveir þriðju framleiðslunnar liggja niðri en óljóst er hve langan tíma mun taka að laga búnaðinn. Viðskipti innlent 22. október 2025 12:00
„Alvarlegt áfall á Grundartanga” sem beri að bregðast við hratt Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins, lýsir alvarlegum áhyggjum af þeirri stöðu sem uppi er á Grundartanga en Norðurál tilkynnti um það í gær að framleiðsla hafi verið stöðvuð í stórum hluta álversins á Grundartanga vegna bilunar í rafbúnaði. Um er að ræða mikið áfall fyrir starfsemina, starfsfólkið og samfélagið allt á Akranesi og í nærsveitum að sögn Vilhjálms. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru uppi töluverðar áhyggjur meðal starfsfólks um mögulegan atvinnumissi vegna stöðunnar. Innlent 22. október 2025 09:53
Stöðva framleiðslu í álverinu á Grundartanga Framleiðsla hefur verið stöðvuð í annarri af tveimur kerlínum álvers Norðuráls á Grundartanga í kjölfar bilunar í rafbúnaði álversins. Bilunin veldur því að álframleiðsla á Grundartanga skerðist um tvo þriðju um óákveðinn tíma. Innlent 21. október 2025 21:00