Ábyrgð í útlendingamálum – breytingar og árangur Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar 10. júní 2026 07:31 Miklar breytingar hafa orðið á útlendingamálum í tíð þessarar ríkisstjórnar. Ábyrg stefna í útlendingamálum er að skila árangri. Árið 2024 voru útgjöld tæpir 16 milljarðar til reksturs Útlendingastofnunar og kærunefndar ásamt málsmeðferð og þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd. Árið 2025 voru útgjöldin mun lægri, eða tæpir 11 milljarðar. Skýr stefna Við höfum gert verulega breytingar. Afturköllun verndar hjá glæpamönnum er orðinn raunhæfur möguleiki. Við afnámum séríslensku 18 mánaða regluna sem veitti fólki sjálfkrafa dvalarleyfi eingöngu vegna tafa á málsmeðferð. Landamæraeftirlit hefur verið eflt, meðal annars með skyldu um afhendingu farþegalista. Lög um brottfararstöð hafa verið samþykkt og reglur um skimun á landamærum lögfestar. Hluti af verndarsamkomulagi ESB hefur verið lögfest. Við munum ná betri stjórn og betri yfirsýn með þessum breytingum. Skilaboð stjórnvalda hafa verið skýr, aðgerðir ákveðnar og almenningur er að upplifa að það sé komin stjórn á hlutina. Eitt af markmiðunum er að efla tiltrú fólks á kerfinu svo breið sátt ríki meðal þess. Það gerum við með breyttum reglum, bættri framkvæmd og skýrum skilaboðum. Fleiri breytingar framundan Fleiri breytingar og aðgerðir eru farvatninu. Frumvarp mitt um sameiningu atvinnuleyfa og dvalarleyfa liggur fyrir Alþingi. Þar er líka tillaga um breyttar reglur er varða námsleyfi. Frumvarp um samræmingu reglna varðandi fjöldaflótta liggur jafnframt fyrir Alþingi. Fyrir liggur ítarleg skýrsla starfshóps um dvalarleyfi. Heildarendurskoðun á þeim reglum mun liggja fyrir Alþingi í haust. Ég hef sett á fót starfshóp um endurskoðun á lögum um ríkisborgararétt. Vinna við reglugerðir eru á fullu innan ráðuneytis meðal annars um íslenskukunnáttu og framfærslu. Breið sátt í útlendingamálum Jaðrarnir í útlendingamálum hafa verið áberandi síðastliðin ár. En jaðrarnir tala ekki fyrir raunhæfum lausnum. Stefna sem byggir á skynsemi, festu og skýrum reglum skilar árangri. Slík stefna byggir á ábyrgri miðju stjórnmálanna. Ég hef sagt það áður, og segi aftur; opnustu reglurnar og minnsta eftirlitið endurspegla ekki mestu mannúðina. Aðflutt fólk auðgar íslenskt samfélag og gegnir mikilvægu hlutverki í atvinnulífi. Okkur ber að taka vel á móti því fólki sem hér sest að. Liður í því er að auka íslenskukennslu en aukin fjárfesting er sett í íslenskukennslu í fjármálaáætlun ríkistjórnarinnar. Ísland er frjálslynt land. En forsenda þess að samfélagið haldi áfram að vera frjálslynt er að almenningur finni að stjórnvöld hafi stjórn á aðstæðum. Höfundur er dómsmálaráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Brottfararstöð fyrir útlendinga Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar