Ekki í okkar nafni Hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundið jafnaðarfólk skrifar 11. júní 2026 07:30 Núna í vikunni samþykkti Alþingi lög um brottvísunarbúðir og greiddu allir þingmenn Samfylkingarinnar atkvæði með frumvarpinu. Um er að ræða lokað úrræði þar sem fólk er frelsissvipt, án þess að hafa framið hér nokkurn glæp. Fjöldi umsagna mannréttindasamtaka barst þinginu þar sem þessum áformum var mótmælt og bent á önnur vægari úrræði. Eins og segir í umsögn Rauða krossins: „Rétt er að hnykkja á að það að þurfa að flýja og óska alþjóðlegrar verndar annars þjóðríkis telst aldrei saknæmt athæfi“. Í umsögn Íslandsdeildar Amnesty segir: „Frumvarpið er með þeim hætti að það felur í sér hættu á fjölþættum og alvarlegum mannréttindabrotum gegn þeim hópi sem frumvarpið beinist að, sem gjarnan er í viðkvæmri stöðu fyrir.“ Í stefnu Samfylkingarinnar sem samþykkt var á síðasta landsfundi flokksins segir að nálgun flokksins í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd skuli vera „út frá grunngildum jafnaðarstefnunnar með mannúð og virðingu fyrir mannréttindum að leiðarljósi“. Þar segir jafnframt: „Þá leggur Samfylkingin áherslu á réttaröryggi og mannhelgi umsækjenda um alþjóðlega vernd og þeirra sem hafa fengið synjun, þ.m.t. einstaklinga í umborinni dvöl, og leggst gegn varðhaldsvistun nema í undantekningartilvikum þegar nauðsyn ber til og engin önnur úrræði duga.“ Í ljósi þessarar yfirlýstu stefnu er ótækt að sjá að þingflokkur Samfylkingarinnar hafi samþykkt lög sem innleiða einmitt varðhaldsvistun í þessum málaflokki, en lögin fjalla ekkert um „önnur úrræði“, sem grípa mætti til áður en til varðhaldsvistunar kemur. Gagnrýni á málið hefur einnig að miklu marki snúið að því að ótækt væri að fangelsa börn í þessum brottvísunarbúðum. Í meðförum nefndar var þeirri breytingu komið inn í lokaútgáfu frumvarpsins, að útbúa skyldi sérstakar brottvísunarbúðir fyrir barnafjölskyldur. Breytir það engu um að um frelsissviptingu barna er að ræða, sem brýtur gegn ákvæðum Barnasáttmálans eins og fjöldi samtaka á borð við Barnaheill og UNICEF hafa bent á. Þá segir í stefnu Samfylkingarinnar um umsækjendur um alþjóðlega vernd:„Mikilvægt er að tekið sé tillit til þarfa og aðstæðna barna í samræmi við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem lögfestur var hérlendis að frumkvæði Samfylkingarinnar.“ Þessi krappa hægri beygja í stefnu flokksins hefur ekki verið rædd á vettvangi flokksins og er að okkar mati í andstöðu við meginstefnu hans og grundvallarsjónarmið. Þá er rétt að doka við og íhuga pólitíska vegferð sem er í andstöðu við sjónarmið mannréttindasamtaka, sjónarmið mannúðar og mildi – á meðan þingmenn Sjálfstæðisflokksins hrósa Samfylkingunni fyrir „sinnaskiptin“. Með þessu opna bréfi mótmælum við þessari lagasetningu um brottvísunarbúðir. Við krefjumst þess að framkvæmd laganna verði stöðvuð þar til tryggt hefur verið að börn verði ekki frelsissvipt vegna stöðu foreldra. Við krefjumst þess jafnframt að Samfylkingin taki málið til formlegrar umræðu á vettvangi flokksins og endurskoði afstöðu sína í samræmi við samþykkta stefnu flokksins um mannúð, réttaröryggi og mannhelgi umsækjenda um alþjóðlega vernd. Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett. Undirrituð eru félagar í Samfylkingunni eða óflokksbundið jafnaðarfólk, Aðalheiður BirgisdóttirAlbína Hulda PálsdóttirAlexandra Ýr van ErvenAnna Lára SteindalAnna Margrét ÓlafsdóttirArna Sigríður AlbertsdóttirArnór Bjarki SvarfdalAuður Alfa ÓlafsdóttirBjarni JónssonBjörgvin G. SigurðssonDóra MagnúsdóttirEiríkur HermannssonEiríkur HjálmarssonEiríkur RögnvaldssonGréta Dögg ÞórisdóttirGuðmundur Andri ThorssonGuðmundur Rúnar ÁrnasonGuðrún Jóna JónsdóttirHalla GunnarsdóttirHalla HalldórsdóttirHaukur JónassonHrannar Björn ArnarssonIngibjörg StefánsdóttirIngiríður HalldórsdóttirÍda FinnbogadóttirJasmina VajzovicJónína Marta ÁrnadóttirKatarzyna KubiśKolbeinn Arnaldur DalrympleKolbrún Lára KjartansdóttirKristinn Örn JóhannessonKristjana FengerLilja Hrönn Önnudóttir HrannarsdóttirLinda Rún JónsdóttirMargrét Gauja MagnúsdóttirMargrét M. NorðdahlMargrét TryggvadóttirNichole Leigh MostyOddný HarðardóttirPáll HalldórssonRósanna AndrésdóttirSabine LeskopfSigfús Ómar HöskuldssonSiggeir F. ÆvarssonSigrún SkaftadóttirSigurður Ingi R. GuðmundssonSoffía SigurðardóttirSólveig ÁsgrímsdóttirStefán Jón HafsteinStein Olav RomsloSvala JónsdóttirVilborg Kristín OddsdóttirVilhjálmur ÞorsteinssonÞorvaldur SverrissonÞórarinn Snorri Sigurgeirsson Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samfylkingin Brottfararstöð fyrir útlendinga Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar