Dorrit á trampólíni Magnús Jochum Pálsson skrifar 15. júní 2026 16:05 Dorrit er ung í anda og skemmti sér á trampólíni um helgina. Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, naut veðurblíðunnar á Íslandi um helgina og skellti sér á trampolín með barnabörnum Ólafs Ragnars Grímssonar. Dorrit hefur verið á miklu flakki síðustu misseri, ferðast meðal annars til Ítalíu, Ísraels og notið íslensku náttúrunnar með hundinum Samson.
Dorrit birti skemmtilegar myndir af sér á Instagram þar sem hún hoppaði á trampólíni í útskrift Katrínar Önnu Karlsdóttur, viðskiptafræðings og barnabarns Ólafs Ragnars. Bróðir Katrínar, Ari Páll Karlsson, smellti skemmtilegum myndum af forsetafrúnni fyrrverandi. „Afsökunarbeiðni til allra fullorðinna fyrir að hanga ekki með þeim,“ skrifaði Dorrit við færsluna. Dorrit hefur notið veðurblíðunnar á Íslandi síðustu daga. Dorrit, sem býr í Lundúnum, birti fleira skemmtilegt myndefni af síðustu Íslandsdsvöl sinni. Í fyrradag birti hún myndband af vini sínum og eiganda íslensks hunds, sem hún kallar uppáhalds kærustu Samsonar síns. Sama dag birti hún mynd af sér í sólbaði með hundunum tveimur. Dorrit baðar sig í læk. Í síðasta mánuði birti hún myndbönd af sér baða hár sitt í læk á leið upp á Esjuna með Samsoni. Sjá einnig: Þegar Dorrit var forsetafrú Dorrit hefur þess utan verið á miklu flakki um heiminn og deilt með fylgjendum sínum myndum frá Feneyjum, Möltu, Washington, New York, Tel Aviv og frá brúðkaupi í Palermo. Þá fjallaði Vísir um það þegar hún fékk mynd af sér með Nigel Farage, leiðtoga stjórnmálaflokksins Reform UK, og óskaði honum til hamingju með kosningasigur í bresku sveitarstjórnarkosningunum í maí. „Til hamingju. Getum við farið aftur til Bretlands núna? Nigel verður næsti forsætisráðherra. Mun gera Bretland stórfenglegt á ný! Enga frekari glæpi!“ sagði hún í færslu sem hún birti með myndinni. Í athugasemd við sömu færslu sagðist hún vilja að öllum glæpamönnum verði vísað frá Bretlandi, til þess að hún þurfi ekki að vera vör um sig þegar hún gengur um götur landsins. Þá rifjar hún upp þegar hún var rænd í Lundúnum og tönn brotnaði. Athygli vekur að Dorrit hefur birt sárafáar myndir af eiginmanni sínum, Ólafi Ragnari Grímssyni, á samfélagsmiðlinum en þau hafa verið gift síðan 14. maí 2003 eða rúm 23 ár.
Samfélagsmiðlar Grín og gaman Ólafur Ragnar Grímsson Tengdar fréttir Dorrit segir þetta besta tímann til að fara til Abu Dhabi Dorrit Moussaieff segir besta tímann til að ferðast til Abu Dhabi, höfuðborgar Sameinuðu arabísku furstadæmanna, vera einmitt núna, þrátt fyrir að landið sé nú í fréttum vegna átaka í Miðausturlöndum og flugskeytaárása Írana. 6. mars 2026 22:03 Dorrit ánægð með demantsklædda Kylie Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, fagnar því að athafnakonan Kylie Jenner og leikkonan Wunmi Mosaku skuli hafa klæðst Moussaieff-skartgripum á BAFTA-hátíðinni um helgina. Skartgripahönnun ættarinnar teygir sig margar aldir aftur í tímann. 24. febrúar 2026 11:22 Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Norskir fjölmiðlar hafa í morgun birt myndir af Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú Íslands, með þeim Mette-Marit, norskri krónprinsessu, og Ghislaine Maxwell, fyrrverandi aðstoðarkonu og um tíma kærustu Jeffreys Epstein. 6. febrúar 2026 11:34 Ræningjarnir hefðu aldrei sloppið á Íslandi Dorrit Moussaieff fyrrverandi forsetafrú var rænd á dögunum þar sem hún var á göngu um London. Hún slasaðist lítillega og hvetur Íslendinga til að fara varlega í borginni, ræningjarnir sluppu en hefðu að mati Dorritar aldrei sloppið á Íslandi. 1. desember 2025 21:33 Mest lesið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Sahara Ray látin Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Menning Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Fleiri fréttir Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda Sjá meira
Dorrit segir þetta besta tímann til að fara til Abu Dhabi Dorrit Moussaieff segir besta tímann til að ferðast til Abu Dhabi, höfuðborgar Sameinuðu arabísku furstadæmanna, vera einmitt núna, þrátt fyrir að landið sé nú í fréttum vegna átaka í Miðausturlöndum og flugskeytaárása Írana. 6. mars 2026 22:03
Dorrit ánægð með demantsklædda Kylie Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, fagnar því að athafnakonan Kylie Jenner og leikkonan Wunmi Mosaku skuli hafa klæðst Moussaieff-skartgripum á BAFTA-hátíðinni um helgina. Skartgripahönnun ættarinnar teygir sig margar aldir aftur í tímann. 24. febrúar 2026 11:22
Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Norskir fjölmiðlar hafa í morgun birt myndir af Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú Íslands, með þeim Mette-Marit, norskri krónprinsessu, og Ghislaine Maxwell, fyrrverandi aðstoðarkonu og um tíma kærustu Jeffreys Epstein. 6. febrúar 2026 11:34
Ræningjarnir hefðu aldrei sloppið á Íslandi Dorrit Moussaieff fyrrverandi forsetafrú var rænd á dögunum þar sem hún var á göngu um London. Hún slasaðist lítillega og hvetur Íslendinga til að fara varlega í borginni, ræningjarnir sluppu en hefðu að mati Dorritar aldrei sloppið á Íslandi. 1. desember 2025 21:33