Skoða hvaða bílastæði megi aftur taka í notkun Agnar Már Másson skrifar 16. júní 2026 15:29 Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. Vísir/Vilhelm Reykjavíkurborg hyggst endurskoða gjaldskyldutíma bílastæða í miðborginni, einfalda rafræna greiðslumáta og fara yfir reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar. Þá verður einnig skoðaða hvort taka megi einhver stæði aftur í notkun.
Þetta er meðal þess sem samþykkt var í borgarstjórn í dag þar sem umhverfis- og skipulagsráði var falið að móta og afgreiða tillögur þar sem markmið er að leysa úr fjölþættum áskorunum sem snúa að bílastæðamálum í borginni. Frá þessu er einnig greint í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Umhverfis- og skipulagsráð hefur fengið tillögurnar til meðferðar og afgreiðslu. Vilja stytta gjaldskyldutíma Meðal þess sem tekið verður til skoðunar er stytting gjaldskyldutíma bílastæða í miðborginni í samráði við íbúa og rekstraraðila, að því er fram kemur í tilkynningu borgarinnar. Einnig verði unnið að því að einfalda rafræna greiðslumáta fyrir bílastæði og gera notendum auðveldara að greiða fyrir stæði. Farið verði yfir reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar með það að markmiði að auka sveigjanleika og meta aðstæður í hverju tilviki fyrir sig. Skoða hvaða stæði megi aftur taka í notkun Þá verði einnig kortlagt hvar unnt sé að taka bílastæði aftur í notkun í miðborginni en það var ofarlega á baugi í kosningabaráttunni í maí að bílastæðum fyrir utan verslanir hefði fækkað í miðborginni. Jafnframt verði skoðað hvernig samræma megi slíkar breytingar við útiveitingar og aðra aðstöðu í borgarrýminu. Þá verði metið verður hvort tímabundin aðstaða fyrir veitingarekstur sem í dag teygi sig inn á bílastæði eigi eingöngu að vera heimil yfir sumarmánuðina. Í tillögunni er einnig lagt til að tryggður verði 90 prósenta afsláttur af gatnagerðargjaldi á bílastæðum í bílakjöllurum borgarinnar. Þá verði ráðist í úrbætur á bílastæðahúsum á vegum Bílastæðasjóðs Reykjavíkur með bættri lýsingu og auknu eftirliti. Loks verði haft samráð við hagaðila um ný sleppistæði fyrir vörulosun í miðborginni með það að markmiði að auðvelda afhendingu vara og bæta aðgengi fyrir rekstraraðila.
Bílastæði Borgarstjórn Reykjavík Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Sjá meira