HM-maður dagsins: Vann í verksmiðju og lætur leiðindi þjálfarans ekki stöðva sig Sindri Sverrisson skrifar 21. júní 2026 10:16 Nadiem Amiri og Deniz Undav glaðbeittir eftir sigurinn sæta gegn Fílabeinsströndinni þar sem Undav skoraði bæði mörkin. Getty/Alexander Hassenstein Þýski framherjinn Deniz Undav vann í verksmiðju og spilaði fótbolta í þýsku 4. deildinni en er nú orðinn sjóðheitur markaskorari á HM, þrátt fyrir að þjálfari Þýskalands hafi opinberlega verið með leiðindi við hann.
Undav hefur verið magnaður á HM til þessa og er fyrsti Þjóðverjinn til að skora í fyrstu tveimur leikjum sínum á HM frá því að sjálfur Miroslav Klose gerði það árið 2002. Undav fékk 26 mínútur í fyrsta leik gegn Curacao og skoraði þá eitt mark og lagði upp tvö, í 7-1 sigri. Hann var svo hetja Þýskalands í gærkvöld þegar hann lék síðasta hálftímann og skoraði bæði mörkin í 2-1 endurkomusigri gegn Fílabeinsströndinni. Sigurinn sendi Þýskaland áfram í 32-liða úrslit HM. Undav kom sjóðheitur inn á HM eftir að hafa skorað 19 mörk fyrir Stuttgart í þýsku 1. deildinni og verið næstmarkahæstur á eftir Harry Kane. Skot frá þjálfaranum sem baðst afsökunar Samt hefur Julian Nagelsmann, þjálfari Þýskalands, streist á móti og ekki viljað hafa Undav í byrjunarliðinu. Undav kallaði sjálfur eftir því að hann fengi tækifæri í byrjunarliði Þýskalands, fyrir vináttulandsleik við Gana í mars, þar sem hann kom inn á og skoraði sigurmarkið. Nagelsmann tók illa í þetta og skaut harkalega á Undav eftir leikinn: „Hann var ekki mikill þáttakandi í leiknum og hafði ekki gert neitt [áður en markið kom]. Mér fannst frammistaða hans ekki góð,“ sagði Nagelsmann sem síðar greindi frá því að hann hefði beðið framherjann afsökunar á ummælunum. Julian Nagelsmann má vera ánægður með Deniz Undav sem heldur áfram að raða inn mörkum sem varamaður.Getty/Alexander Hassenstein Spilaði í þýsku D-deildinni og fór 24 ára í belgísku B-deildina Hinn 29 ára Undav er hins vegar alveg vanur því að þurfa að hafa fyrir hlutunum og fá ekkert upp í hendurnar. Þegar hann var 14 ára hafnaði Werder Bremen honum og þess vegna var hann 17 ára farinn að spila með Havelse í þýsku D-deildinni, ásamt því að vinna í verksmiðju í átta tíma á dag. Það var ekki fyrr en hann var orðinn 24 ára sem Undav komst að hjá belgíska B-deildarliðinu Union Saint-Gilloise árið 2020 og síðan þá hefur leiðin að mestu legið upp á við. Hann hjálpaði liðinu að komast upp í efstu deild Belgíu þar sem hann raðaði svo inn 25 mörkum. Þetta kveikti áhuga enska félagsins Brighton sem fékk Undav árið 2022 en þar gengu hlutirnir ekki alveg upp og hann var svo lánaður til Stuttgart heima í Þýskalandi sem síðar keypti hann. Since Deniz Undav's underwhelming season at Brighton & Hove Albion, he has scored 57 goals and provided 31 assists in all competitions for Stuttgart, at a rate of 0.94 goal contributions per game.But his record for Germany is even better.After his double against Ivory Coast,… pic.twitter.com/R26ZksgINQ— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) June 20, 2026 Ekki sannfærður um að Undav fari í byrjunarliðið Hjá Stuttgart hefur Undav blómstrað og að meðaltali skorað í öðrum hverjum leik, og með þýska landsliðinu er hlutfallið enn betra því hann er nú með níu mörk í ellefu leikjum, þrátt fyrir að Nagelsmann vilji aldrei nota hann í byrjunarliðinu. Landsliðsþjálfarinn viðurkenndi þó eftir hetjulega frammistöðu Undav í gærkvöld að kannski væri kominn tími á að prófa Undav í byrjunarliðinu. „Já, svo sannarlega,“ sagði Nagelsmann en benti þó á hve mikil áhrif Undav hefur getað haft sem varamaður. „Ég hef sagt það áður að við getum rætt um ólíkar leiðir til að nálgast þetta. Af hverju ætti ég að eyðileggja flæðið hjá honum? Hann hefur komið tvisvar inn á og skorað tvisvar,“ sagði Nagelsmann. Þýskaland mætir Ekvador á fimmtudaginn í lokaumferð riðlakeppninnar.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir Lillestrøm - Real Sociedad | Evrópu Orri mætir til Noregs Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Sjá meira