„Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 21. júní 2026 10:40 Soffía Jóhannesdóttir slasaðist illa í slysinu. Kona á tíræðisaldri slasaðist í Grafarvogi þegar hún flaug úr hjólastól sínum á sprunginni gangstétt í hverfinu þar sem hún var á leið í klippingu. Sonur konunnar kallar eftir því að borgaryfirvöld bregðist strax við og geri við gangstéttina þar sem hafi orðið mörg slys. „
Móðir okkar sem er 93 ára hugðist fara á milli húsa í blíðunni og fékk til þess aðstoð við að aka hjólastólnum. Þegar þarna var komið hlekktist stólnum á einni ójöfnunni og kastaðist móðir okkar á andlitið, beint á brotnu stéttina,“ skrifar Hermann Guðmundsson framkvæmdastjóri Kemi um móður sína Soffíu Jóhannesdóttur á Facebook þar sem hann varar við slysagildru. Slysið hafi átt sér stað á gangstétt við Langarima 4 í Grafarvogi sem öll sé sprungin og úr lagi gengin. Þarna hafi orðið mörg slys á hlaupahjólum, barnavögnum og núna hjólastól. „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð. Nú skora ég á félaga mína í Sjálfstæðisflokknum að forða því strax að fleiri svona slys verði á þessum stað. Ábendingum íbúa hefur aldrei verið sinnt.“ Gangstéttin er illa farin. Í samtali við Vísi segir Hermann móður sína vera á batavegi. Hún dvelji á hjúkrunarheimilinu Eir þar sem hún hafi ávallt fengið góða umönnun. Starfsmaður hafi verið á leið með henni í klippingu þennan dag þegar slysið varð og hjólastóllinn pikkfestist í sprungu með þeim afleiðingum að móðir hans flaug fram fyrir sig. „Þetta er auðvitað mikið áfall, hún var í miklu sjokki og þurfti að eyða deginum á sjúkrahúsi. Hún slapp við beinbrot og við höfðum áhyggjur af því að hún hafi fengið heilahristing, en ekki komið fram nein merki um það hingað til en á höndum er hún öll blá og marin eins og í andliti.“ Hermann segir nágranna sem urðu vitni að slysinu hafa drifið sig á staðinn þegar slysið varð til að hlúa að móður hans. „Og koma henni til hjálpar og þá koma fram þessar upplýsingar að þarna hafi margoft orðið slys, fólk með barnavagna, á hlaupahjólum og á reiðhjólum. Þetta er ekkert grín.“
Reykjavík Eldri borgarar Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira