Tyrkir náðu loksins sigri og jafntefli hentaði báðum liðum Andri Broddason skrifar 26. júní 2026 07:39 Arda Guler átti flottan leik fyrir Tyrkland í gær en liðið komst ekki áfram í 32-liða úrslit HM. Alex Grimm/Getty Images Tveir riðlar kláruðust í gær á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Það voru litlar vendingar í riðlunum sem kláruðust en þrjú lið fara upp úr þeim báðum.
Í D-riðli átti Tyrkland leik við Bandaríkin. Tyrkland var stigalaust fyrir leikinn og Bandaríkin með fullt hús stiga. Þessi leikur skipti því litlu máli þar sem Bandaríkin voru búin að tryggja sig áfram og Tyrkland gat fræðilega ekki komist upp úr riðlinum. Þrátt fyrir það var leikurinn fjörugur og náðu Tyrkir sárabótasigri eftir mark í uppbótartíma. Bandaríkin náðu forystu snemma í leiknum en Tyrkland var ekki lengi að jafna og bætti svo við öðru marki stuttu seinna. Bandaríkjamenn jöfnuðu fljótlega í seinni hálfleik en hetja leiksins var Kaan Ayhan því hann tryggði sigurinn fyrir Tyrkland í uppbótartíma eftir góða sókn og endaði leikurinn 3-2. Heimsmeistaramótið var vonbrigði fyrir Tyrkland en sigur í lokaleiknum lætur liðið líta aðeins betur út. Í hinum leik D-riðils mættust Paragvæ og Ástralía en þau gerðu markalaust jafntefli. Ástralía endar þá riðilinn í öðru sæti með fjögur stig en Paragvæ í því þriðja með jafnmörg stig. Paragvæ mun einnig komast áfram í 32-liða úrslit í gegnum þriðja sæti riðilsins þar sem liðið er með fjögur stig. Jafntefli og öruggur sigur Í F-riðli var svipuð staða og í D-riðli en þar var Túnis stigalaust og gat ekki farið upp úr riðlinum. Þeir mættu Hollendingum sem unnu sannfærandi sigur og um leið riðilinn. Holland var komið tveimur mörkum yfir þegar tíu mínútur voru ekki búnar af leiknum og því ljóst að þetta yrði erfiður leikur fyrir Túnis. Í seinni hálfleik náði Túnis að minnka muninn en Hollendingar bættu við öðru marki stuttu seinna og endaði leikurinn 3-1. Japan og Svíþjóð spiluðu mikilvægari leik þar sem bæði lið vildu sækja stig til að tryggja sig upp úr riðlinum. Leikurinn byrjaði rólega og var staðan markalaus í hálfleik. Í seinni hálfleik náði Daizen Maeda að skora fyrir Japan en það forskot dugði stutt þar sem Anthony Elanga jafnaði metin nokkrum mínútum síðar. Þetta urðu lokatölur riðilsins og náði Japan að tryggja sér annað sætið. Svíþjóð náði einnig að tryggja sig áfram en liðið situr í þriðja sæti með fjögur stig. Japan mun mæta Brasilíu í 32-liða úrslitum en ekki er víst hvaða liði Svíþjóð mætir. Holland fær Marokkó og því er um hörkuleiki fyrir bæði lið að ræða.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Fleiri fréttir Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Sjá meira