Ummæli Tuchels um Reece James vekja furðu: „Enginn gat séð þetta fyrir“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. júní 2026 18:27 Reece James hefur misst af fjölmörgum leikjum vegna meiðsla á undanförnum árum. getty/Nicolò Campo Þrátt fyrir langa meiðslasögu segir Thomas Tuchel, þjálfari enska landsliðsins, að ekki hafi verið hægt að sjá fyrir að hann myndi detta út vegna meiðsla á heimsmeistaramótinu sem nú stendur yfir.
James ferðaðist ekki með enska liðinu til New Jersey þar sem það mætir Panama í lokaleik sínum í L-riðli heimsmeistaramótsins. Chelsea-maðurinn glímir við meiðsli og óttast er að hann missi einnig af leik Englands í 32-liða úrslitunum. James hefur verið óheppinn með meiðsli á ferlinum og byrjaði til að mynda aðeins tuttugu af 38 leikjum Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Þrátt fyrir það kom það Tuchel í opna skjöldu að James skyldi meiðast núna. „Enginn gat séð þetta fyrir,“ sagði sá þýski. „Recce var í góðu standi og honum leið vel svo þetta er óheppni. En Ezri Konsa hefur spilað þarna fyrir okkur og þetta er ekkert vandamál.“ Umræddur Konsa gæti leyst stöðu hægri bakvarðar hjá enska landsliðinu í fjarveru James eða þá Djed Spence sem hefur komið við sögu í báðum leikjum Englands á HM. Tino Livramento þurfti einnig frá að hverfa frá HM vegna meiðsla en þrátt fyrir það hóaði Tuchel ekki í annan hægri bakvörð heldur miðvörðinn Trevor Chalobah. Blaðamaðurinn Henry Winter er meðal þeirra sem furða sig á ummælum Tuchels um James og segir að allir hefðu getað séð það fyrir að hann myndi meiðast. Þá botnar hann ekki í meðferð Tuchels á Trent Alexander-Arnold sem hefur aðeins leikið einn hálfleik fyrir enska landsliðið síðan sá þýski tók við því. “No-one could see that coming.” Thomas Tuchel on Reece James’ injury. Except, unfortunately, everyone could see that coming. Frustrating in every sense. Picking James in the squad was understandable. Top full-back. But to have insufficient cover was naive. And then, following…— Henry Winter (@henrywinter) June 27, 2026 Á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Panama staðfesti Tuchel að Bukayo Saka, Declan Rice og Elliot Anderson væru klárir í slaginn. Þeir tveir síðastnefndu æfðu ekki með enska liðinu á fimmtudaginn vegna meiðsla en tóku þátt í æfingu gærdagsins. England er með fjögur stig á toppi L-riðils og tryggir sér toppsæti hans með sigri á Panama í kvöld. Leikurinn fer fram á MetLife-leikvanginum í New Jersey og hefst klukkan 21:00.
HM 2026 í fótbolta Tengdar fréttir Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, segir að væntanleg félagaskipti Elliot Anderson til Manchester City hafi engin áhrif á undirbúning hans fyrir lokaleik Englands í riðlakeppni HM. 27. júní 2026 14:30 Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Fleiri fréttir Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Sjá meira
Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, segir að væntanleg félagaskipti Elliot Anderson til Manchester City hafi engin áhrif á undirbúning hans fyrir lokaleik Englands í riðlakeppni HM. 27. júní 2026 14:30