Maður dagsins á HM: Kominn með fleiri mörk á HM en allt síðasta tímabil Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. júní 2026 11:00 Yoane Wissa fagnar eftir að hafa skorað annað mark sitt og þriðja mark Kongó gegn Úsbekistan. getty/Sean M. Haffey Eftir vonbrigðatímabil með Newcastle United hefur Yoane Wissa heldur betur látið að sér kveða á heimsmeistaramótinu. Mörk hans áttu hvað stærstan þátt í að koma Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó í 32-liða úrslit.
Kongó er á sínu fyrsta heimsmeistaramóti síðan 1974 en þá hét landið Zaire. Miklar væntingar voru þá gerðar til liðsins heima fyrir en það tapaði öllum þremur leikjum sínum, skoraði ekki mark en fékk á sig fjórtán. Sterkasta minning flestra af þátttöku Zaire á HM 1974 er af því þegar Mwepu Ilunga hljóp óvænt úr varnarvegg og þrumaði boltanum í burtu þegar Brasilía var að búa sig undir að taka aukaspyrnu. Margir hentu gaman að Ilunga og töldu meðal annars að hann kynni ekki reglurnar í fótbolta. En þetta var einhvers konar viðbragð örvæntingafulls manns. Ilunga og félagar voru undir mikilli pressu frá einræðisherranum Mobuto Sese Seko og vissu að þeirra biði ekki beint rauður dregill við heimkomuna eftir sneypuförina til Vestur-Þýskalands. Rúmri öld síðar er Kongó mætt aftur á HM og að þessu sinni hefur liðið aðallega vakið athygli fyrir góða spilamennsku. Í fyrsta leik sínum í K-riðli gerðu Kongómenn 1-1 jafntefli við Portúgali. Wissa skoraði jöfnunarmark Kongó í uppbótartíma fyrri hálfleiks og stimplaði sig inn í mótið. Kongó tapaði fyrir Kólumbíu, 1-0, í öðrum leik sínum í riðlakeppninni en vissi að með sigri á Úsbekistan í lokaleik sínum myndi liðið komast áfram í 32-liða úrslit. Það byrjaði ekki vel fyrir Kongó því á 10. mínútu kom Eldor Shomurodov Úsbekistan yfir. Kongó gafst ekki upp og á 68. mínútu jafnaði Wissa úr vítaspyrnu. Fiston Mayele kom Kongómönnum yfir á 78. mínútu og í uppbótartíma gulltryggði Wissa sigur þeirra með góðu skoti frá vítateigshorninu. Wissa hefur skorað þrjú af fjórum mörkum Kongó á HM og virðist hafa hrist af sér slen vetrarins. Hann átti nefnilega afar erfitt uppdráttar hjá Newcastle eftir að hafa verið keyptur frá Brentford síðasta sumar. Hinn 29 ára Wissa glímdi við meiðsli og lék aðeins nítján leiki í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Í þeim skoraði hann aðeins eitt mark en Newcastle olli miklum vonbrigðum og endaði í 12. sæti deildarinnar. Til samanburðar skoraði Wissa nítján deildarmörk á sínu síðasta tímabili með Brentford. Talandi um ensku úrvalsdeildina þá er England einmitt næsti mótherji Kongó á HM. Liðin eigast við í Atlanta á miðvikudaginn en Kongómenn fá þar tækifæri til að koma enn meira á óvart og halda áfram að skrifa sína HM-sögu. Stuðningsmenn Newcastle vonast svo væntanlega til að sjá HM-útgáfuna af Wissa á næsta tímabili.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Enski boltinn Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Haaland kyndir undir Haaland-æði á samfélagsmiðlum Fótbolti Fleiri fréttir Drengjalið Vals vann Dana Cup Kolbeinn hafði betur gegn Íslendingaliði Brann Kolbeinn og Hjörtur töpuðu gegn toppliðinu Elías Rafn vann Íslendingaslaginn í Danmörku Haaland kyndir undir Haaland-æði á samfélagsmiðlum Juventus vill fá tvo leikmenn til að bæta sóknina Ítalía endurhugsar að ráða Pirlo vegna tengsla við Rússland Nýja lið Dags Dan fagnaði sigri Sigur í fyrsta leik Iraola hjá Liverpool Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Barcelona mun styðja fjölskyldu verkamanns sem lést á Nývangi Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Var strax sannfærð: „Bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona“ Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Selja Japanann til Ipswich og kaupa gamla Valsarann í staðinn Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fyrsti sigur ÍR-inga síðan á Þjóðhátíðardeginum Guðrún skoraði þegar Hammarby komst á topp deildarinnar Kristiansund komið í fallsæti eftir að Júlíus Mar fékk rautt Fór snemma út af í jafntefli við nýliðana Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Æfir íslenskuna daglega í klefanum Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Sjá meira