Ríkisvaldið féll á lyfjaprófi Vilhjálmur H. Vilhjálmsson skrifar 29. júní 2026 07:02 Með dómi Landsréttar í máli nr. 785/2025 frá 25. júní 2026 var ákærði sýknaður af því að hafa fjórum sinnum á tímabilinu 1. febrúar 2024 til 5. mars 2025 ekið bifreið undir áhrifum óxýkódon sem hann var með uppáskrifað af lækni. Í ákæru voru brotin talin varða við 1. og 2. mgr. 48. gr. umferðarlaga (lyfjaakstur). Áður hafði Héraðsdómur Norðurlands Eystra sakfellt ákærða fyrir þessa sömu háttsemi á grundvelli matsgerða rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði, en í öllum fjórum tilvikunum var ákærði metinn óhæfur til þess að stjórna ökutæki örugglega samkvæmt matsgerð. Með dómi héraðsdóms var ákærði sviptur ökurétti 15 mánuði og gerð fangelsisrefsing. Í forsendum fyrir niðurstöðu sinni sagði Landsréttur meðal annars að hvað sem liði niðurstöðum matsgerða rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði þá yrði ákærði ekki sakfelldur á grundvelli þeirra einna gegn staðfastri neitun ákærða og klínísku mati læknis sem ákærði gekkst undir í kjölfar eins akstursins. Við flutning málsins í Landsrétti var sýknukrafa ákærða jafnframt byggð á 6. mgr. 48. gr. umferðarlaga, en þar segir: Ráðherra er heimilt að kveða á um vanhæfismörk með nánari hætti í reglugerð, þ.e. hvenær ökumaður teljist vera óhæfur til að stjórna ökutæki vegna neyslu lyfja. Þrátt fyrir að umferðarlög nr. 77/2019 hafi tekið gildi 1. janúar 2020 hefur innviðaráðherra u.þ.b. 7 árum síðar ekki ennþá séð sér fært að kveða á um ofangreint í reglugerð með tilheyrandi réttaróvissu, réttarspjöllum og röngum sakfellingum. Það er ótækt í réttarríki. Samkvæmt 21. gr. laga um meðferð sakamála hefur ríkissaksóknari eftirlit með framkvæmd ákæruvalds hjá öllum ákærendum. Með vísan til niðurstöðu Landsréttar í máli nr. 785/2025 er skorað á ríkissaksóknara að endurskoða öll lögreglumál, þar sem ökumenn voru kærðir fyrir brot á 1. og 2. mgr. 48. gr. umferðarlaga, frá 1. janúar 2020 til 29. júní 2026, þar sem málunum var lokið með lögreglustjórasátt eða útgáfu ákæru og dómi. Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dómsmál Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Með dómi Landsréttar í máli nr. 785/2025 frá 25. júní 2026 var ákærði sýknaður af því að hafa fjórum sinnum á tímabilinu 1. febrúar 2024 til 5. mars 2025 ekið bifreið undir áhrifum óxýkódon sem hann var með uppáskrifað af lækni. Í ákæru voru brotin talin varða við 1. og 2. mgr. 48. gr. umferðarlaga (lyfjaakstur). Áður hafði Héraðsdómur Norðurlands Eystra sakfellt ákærða fyrir þessa sömu háttsemi á grundvelli matsgerða rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði, en í öllum fjórum tilvikunum var ákærði metinn óhæfur til þess að stjórna ökutæki örugglega samkvæmt matsgerð. Með dómi héraðsdóms var ákærði sviptur ökurétti 15 mánuði og gerð fangelsisrefsing. Í forsendum fyrir niðurstöðu sinni sagði Landsréttur meðal annars að hvað sem liði niðurstöðum matsgerða rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði þá yrði ákærði ekki sakfelldur á grundvelli þeirra einna gegn staðfastri neitun ákærða og klínísku mati læknis sem ákærði gekkst undir í kjölfar eins akstursins. Við flutning málsins í Landsrétti var sýknukrafa ákærða jafnframt byggð á 6. mgr. 48. gr. umferðarlaga, en þar segir: Ráðherra er heimilt að kveða á um vanhæfismörk með nánari hætti í reglugerð, þ.e. hvenær ökumaður teljist vera óhæfur til að stjórna ökutæki vegna neyslu lyfja. Þrátt fyrir að umferðarlög nr. 77/2019 hafi tekið gildi 1. janúar 2020 hefur innviðaráðherra u.þ.b. 7 árum síðar ekki ennþá séð sér fært að kveða á um ofangreint í reglugerð með tilheyrandi réttaróvissu, réttarspjöllum og röngum sakfellingum. Það er ótækt í réttarríki. Samkvæmt 21. gr. laga um meðferð sakamála hefur ríkissaksóknari eftirlit með framkvæmd ákæruvalds hjá öllum ákærendum. Með vísan til niðurstöðu Landsréttar í máli nr. 785/2025 er skorað á ríkissaksóknara að endurskoða öll lögreglumál, þar sem ökumenn voru kærðir fyrir brot á 1. og 2. mgr. 48. gr. umferðarlaga, frá 1. janúar 2020 til 29. júní 2026, þar sem málunum var lokið með lögreglustjórasátt eða útgáfu ákæru og dómi. Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar