Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Birgir Olgeirsson skrifar 29. júní 2026 06:32 Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, og Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar, eru bræður og koma báðir við sögu í hagræðingaraðgerðum Reykjavíkurborgar í ólíkum hlutverkum. Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar og formaður hagræðingarhóps Reykjavíkurborgar, og Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, eru sammæðra hálfbræður. Samtöl þeirra á milli undanfarna daga og inn í sumarið gætu orðið áhugaverð enda gæta þeir ólíkra hagsmuna við niðurskurð hjá Reykjavíkurborg.
Róbert leiðir vinnu nýs meirihluta við hagræðingu og breytingar á stjórnkerfi borgarinnar. Kári fer fyrir Sameyki, stéttarfélagi fjölda starfsmanna borgarinnar, og hefur gagnrýnt tímasetningu fyrstu uppsagna meirihlutans. Þeir eru þannig báðir í miðju einu heitasta máli borgarinnar um þessar mundir — annar sem formaður hópsins sem á að finna leiðir til að hagræða, hinn sem formaður félagsins sem gætir hagsmuna margra þeirra starfsmanna sem aðgerðirnar snerta. Átján starfsmönnum á skrifstofu borgarstjóra var sagt upp í vikunni og níu færð til í starfi. Rúmlega helmingur þeirra sem misstu vinnuna er í Sameyki. Kári sagði í samtali við fréttastofu að þungt hefði verið yfir ráðhúsinu eftir uppsagnirnar. Aðgerðirnar sjálfar hefðu ekki endilega komið á óvart, enda hefði hagræðing verið boðuð, en tímasetningin vekti spurningar. Hann sagðist velta fyrir sér hversu vel ígrundaðar ákvarðanirnar væru. Róbert var nýverið skipaður formaður stýrihóps um hagræðingu og stjórnkerfisbreytingar hjá borginni. Hópurinn á að leggja fram tillögur jafnóðum og vinna hans miðar að því að draga úr kostnaði við yfirbyggingu, einfalda stjórnsýslu og breyta skipulagi borgarkerfisins.
Reykjavík Viðreisn Tengdar fréttir Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir von á fleiri hagræðingaraðgerðum síðar í sumar. Ekki sé tímabært að kynna þær en nú verði unnið að þeim sem kynntar voru í vikunni. Sem dæmi sé ráðningabann, skoða eigi viðveru starfsmanna og utanlandsferðir þeirra. 28. júní 2026 12:21 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Sjá meira
Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir von á fleiri hagræðingaraðgerðum síðar í sumar. Ekki sé tímabært að kynna þær en nú verði unnið að þeim sem kynntar voru í vikunni. Sem dæmi sé ráðningabann, skoða eigi viðveru starfsmanna og utanlandsferðir þeirra. 28. júní 2026 12:21