Maður dagsins á HM: „Gæti ekki hugsað mér mann sem átti þetta meira skilið“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júní 2026 10:02 Stephen Eustaquio fagnar hér sigurmarki sinu í gær. Getty/Katelyn Mulcahy Stephen Eustaquio hafði ekki skorað fyrir kanadíska landsliðið í næstum því þrjú ár þegar hann tryggði liðinu sæti í sextán liða úrslitum HM í gær.
Miðjumaðurinn vinnusami skoraði eina markið í 1-0 sigri Kanada á Suður-Afríku í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins en markið mikilvæga kom ekki fyrr en í uppbótartíma leiksins. „Ég gæti ekki hugsað mér mann sem átti þetta meira skilið úr hópi ótrúlegra manna,“ sagði landsliðsþjálfarinn Jesse Marsch við fréttamenn eftir sigurinn í Los Angeles. Canada hero Stephen Eustaquio bursts into tears as he emotionally opens up on his late parents after scoring game-winning World Cup goal following their deaths https://t.co/74HpxHdywC— Daily Mail Sport (@MailSport) June 29, 2026 „Kannski er Steph sá sem á mest skilið að upplifa svona stund. Þannig að ég er virkilega ánægður fyrir hans hönd og ég held að einhvers staðar séu foreldrar hans að horfa niður og þeir sáu þetta,“ sagði Marsch. Eustaquio missti báða foreldra sína á rúmlega ári, móður sína í apríl 2023 og föður sinn í maí 2024. Marsch sagði að Eustaquio væri holdgervingur þess sem lið hans hefði unnið að því að þróa. „Steph er einn af þeim í liðinu sem ég tel vera áreiðanlegasta og skilur hverju við erum að reyna að ná fram sem hópur,“ sagði hann. „Við tölum mikið um að halda ró. Það var gott að sjá hann á þessari stundu hugsa bara um hvernig ætti að hitta boltann þannig að hann ætti sem besta möguleika á að fara inn,“ sagði Marsch. „Við unnum fyrir þessu,“ sagði Eustáquio. „Við erum með sérstakan hóp. Okkur líður eins og við séum bræður. Þegar við berjumst hver fyrir annan, þegar við spilum hver fyrir annan, geta sérstakir hlutir eins og þetta gerst. Ég er í skýjunum, en á sama tíma vil ég ekki segja að verkinu sé lokið,“ sagði Eustáquio. „Við hættum aldrei að trúa. Og ég held að markið sé virkilega eitthvað sem við áttum skilið,“ sagði Eustáquio. 𝐖𝐡𝐚𝐭 𝐝𝐨 𝐒𝐭𝐞𝐩𝐡𝐞𝐧 𝐄𝐮𝐬𝐭𝐚𝐪𝐮𝐢𝐨 𝐚𝐧𝐝 𝐀𝐧𝐝𝐫𝐞𝐚 𝐏𝐢𝐫𝐥𝐨 𝐡𝐚𝐯𝐞 𝐢𝐧 𝐜𝐨𝐦𝐦𝐨𝐧?They each created five chances from set plays in a World Cup knockout match.🇨🇦 Eustaquio vs. South Africa, R32, 2026🇮🇹 Pirlo vs. Germany, semi-final, 2006According to… pic.twitter.com/BnB5o9G6hs— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) June 28, 2026 Þótt aðrir geti gert tilkall til að vera andlit þessa kanadíska liðs er Eustáquio án efa sá sem lætur hlutina ganga inni á vellinum. Hann er ástríðufullur leiðtogi og sumar af hans bestu frammistöðu fyrir félagslið og landslið hafa komið á stærstu sviðunum, eins og hann sýndi með portúgalska stórliðinu Porto, þar sem hann vann marga titla. Hann er óþreytandi á milli vítateiganna og býr yfir gríðarlegri fjölhæfni, jafnvígur á að sækja inn í teiginn eða koma boltanum fram völlinn. Hann getur spilað sem djúpur varnarsinnaður miðjumaður og jafnvel sem miðvörður. Eustáquio er draumur hvers þjálfara. Eustáquio fæddist í Ontario, skammt frá landamærum Bandaríkjanna, en þegar hann var sjö ára flutti Eustáquio með portúgölskum foreldrum sínum aftur til Portúgals, þar sem hann hóf feril sinn í atvinnumennsku í fótbolta. Hann fór frá Porto til Los Angeles á láni í febrúar á þessu ári og styrkti stjörnum prýtt lið þeirra. Richie Laryea, liðsfélagi hans í kanadíska landsliðinu, segir að mikilvægi Eustáquio fyrir landsliðið verði seint ofmetið: „Hann vinnur mikið af skítverkum sem fólk tekur ekki endilega eftir.“ Í gær fékk hann þó heldur betur sviðsljósið og skoraði markið sem tryggði Kanada sinn fyrsta sigur í útsláttarkeppni á heimsmeistaramóti. Stephen Eustaquio was born in Ontario, Canada, before moving to Portugal as a child.He appeared for Canada Under-17s in 2012, before making several appearances for Portugal Under-21s in 2017 and 2018.However, in 2019, Eustaquio committed his allegiance to Canada, making his… pic.twitter.com/kXHc7i4qUX— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) June 29, 2026
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Körfubolti Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Fótbolti Fleiri fréttir Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Sjá meira