„Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 29. júní 2026 17:42 Markmið hópsins er að sökkva hvalveiðiskipinum Hval 8 og 9, bókstaflega eða táknrænt. Vísir/Vilhelm Leiðangursstjóri Aðgerðar 86, sem er um borð í skipinu Bandero, biður Íslendinga afsökunar á því að hafa komið til landsins fyrir fjórum áratugum í skjóli nætur. Þá sökkti hann tveimur hvalveiðiskipum. Hópur fólks um borð í Bandero siglir nú innan lögsögu Íslands í því skyni að binda enda á hvalveiðar.
Rodney Adam Coronado, eða Rod, leiðangursstjóri Aðgerðar 86, ræddi stöðu mála í Reykjavík síðdegis í dag en hann erum borð í skipinu Bandero. Aðgerð 86, sem stofnun Paul Watson hvalveiðiaktívista, boðaði til snýst um að binda endi á hvalveiðar Íslendinga. Nafnið er vísun í aðgerð sem Rod tók þátt í árið 1986 þegar tveimur hvalveiðiskips Hval hf. var sökkt í Reykjavíkurhöfn. „Fyrst af öllu vil ég biðja íslensku þjóðina afsökunar því þegar ég kom til Íslands fyrir fjörutíu árum kom ég í skjóli nætur. Og ég fór í skjóli nætur, svolítið eins og glæpamaður. Mér fannst það nauðsynlegt vegna ógnarinnar við alþjóðlegt bann við hvalveiðum og ógnarinnar við tilvist langreyða,“ segir Rod Coronado, leiðangursstjóri Aðgerðar 86, í Reykjavík síðdegis. Rod kom til Íslands árið 1986 með David Howard og vörðu þeir mánuði í að kynna sér aðstæður, safna upplýsingum og heimsækja hvalastöðina. Forsíða DV þann 10. nóvember 1986 þar sem sjá má Hval 6 og Hval 7 sökkva.Tímarit.is. „Þann 8. nóvember ákváðum við að grípa til aðgerða. Og aftur, sú aðgerð var án ofbeldis. Við fórum í tóma hvalstöðina án þess að nokkur væri þar og eyðilögðum eins mikið af vélbúnaði og mögulegt var sem var notaður til að drepa þær langreyðar sem voru veiddar í bága við bannið á hvalveiðum í atvinnuskyni,“ segir Rod og vísar þar í samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins um bann við hvalveiðum í atvinnuskyni sem var undirrituð árið 1985. „Við fórum síðan til Reykjavíkurhafnar þar sem við fórum um borð í Hval 6 og Hval 7. Ég hef sjálfur verið vélstjóri á Sea Shepherd áður og vissi því hvar ég ætti að finna botnlokana til að hleypa sjónum inn.“ Hann ítrekar að þeir hafi ekki viljað skaða neina manneskju. Hann hefði getað sökkt Hvali 8 en hætti við þar sem einn maður var sofandi um borð. Stefna að því að sökkva skipunum bókstaflega eða táknrænt Rod segir skipverjara Bandero almennt í góðu skapi. Um 27 eru um borð í skipinu og ætla þau öll að dvelja þar þar til að hvalveiðiskipin tvö eru tekin úr notkun. „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku til að vernda þessa hvali. Þannig að ef Landhelgisgæsla Íslands vill grípa til aðgerða til að stöðva þessa herferð þá er betra að hún hafi 27 fangaklefa tilbúna fyrir okkur,“ segir hann. Hann tekur fram að engin vopn séu um borð í skipinu. „Við gerum ekki starfsmenn skipanna að skotmörkum. Við teljum Landhelgisgæslu Íslands ekki vera óvin okkar. Við teljum íslensku þjóðina ekki vera óvini okkar. Við erum að beina spjótum okkar að Hval 8 og Hval 9,“ segir Rod. „Þetta eru eyðileggingartækin sem við viljum sjá tekin úr notkun með ofbeldislausum aðferðum, alveg eins og mér tókst að sökkva þessum skipum án þess að skaða neinn. Það væri sama markmið og við höfum í dag.“ Svo þið eruð að stefna á að sökkva skipunum aftur? „Annaðhvort bókstaflega eða táknrænt, en ég er að vona, eins og ég sagði, að við getum gert eitthvað löglega.“ Einn maður beri ábyrgð Rod kallar eftir aðstoð íslensku þjóðarinnar. Einungis einn maður beri ábyrgð á drápi yfir þúsund hvala. „Þetta er eitthvað sem við getum ekki gert ein. Við þurfum að allur heimurinn standi með okkur. Margar þjóðir heims standa þegar með okkur, standa með Alþjóðahvalveiðiráðinu og hvalveiðibanni þess. Það er aðeins einn maður á Íslandi sem ógnar áframhaldandi tilvist langreyða,“ segir hann. „Frá því að hvalveiðibannið tók gildi hefur Kristján Loftsson borið ábyrgð á drápi yfir 1074 hvala. Engum einum manni ætti að vera veitt heimild af stjórnvöldum til að ógna tilvist heillar dýrategundar.“ Þór eltir Bandero nærri Hvalfirði „Ég var einmitt að horfa út um gluggann á varðskip Landhelgisgæslunnar, sem er hér um tólf mílur á bakborða. Það hefur haldið þeirri stöðu síðan í gær,“ segir Rod. Varðskipið Þór lét úr höfn í gærkvöldi og fylgir nú skipinu Bandero eftir. Um borð eru sérsveitarmenn en á korti Marine Traffic má sjá að skipið er rétt fyrir utan Kollafjörð, nærri höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt heimildum mbl er Hvalur 9 á leið til Hvalfjarðar með tvær langreyðar og er búist við skipinu undir kvöld. Skipið Bandero er í eigu Paul Watson, hvalaverndaraktívista, og var því siglt inn í íslenska efnahagslögsögu á laugardag. Fyrst um sinn urðu forsvarsmenn ekki við beiðni Landhelgisgæslunnar um að gefa upp staðsetningu sína og báru fyrir sig að búnaðurinn væri ónýtur. Eftir að hafa verið gert að senda gæslunni staðsetningu sína á klukkustundar fresti hóf Bandera að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir gæsluna undirbúna undir allar sviðsmyndir vegna veru skipsins.F
Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Hvalveiðar Landhelgisgæslan Hvalir Dýr Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis Innlent „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Innlent Fleiri fréttir „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í Miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent