Sport

Sinner rétt vann í fyrsta leik Wimbledon-mótsins

Andri Broddason skrifar
Jannik Sinner virtist meiða sig illa í þriðja setti leiksins en hann harkaði það af sér og kláraði leikinn með sigri.
Jannik Sinner virtist meiða sig illa í þriðja setti leiksins en hann harkaði það af sér og kláraði leikinn með sigri. Matthew Stockman/Getty Images

Litlu mátti muna að Jannik Sinner myndi detta út í fyrstu umferð Wimbledon-mótsins. Mótherji hans, Miomir Kecamanovic, náði að knýja fram fimm setta leik.

Jannik Sinner varð fyrir vonbrigðum á síðasta risamóti í tennis þegar hann datt óvænt út úr Opna franska risamótinu í annarri umferð. Þar tapaði hann gegn Argentínumanninum Juan Manuel Cerundolo sem var í 56. sæti heimslistans á meðan Sinner var í því fyrsta.

Litlu mátti muna að það sama myndi gerast í fyrstu umferð á Wimbledon-mótinu en Sinner náði naumlega að bjarga sér. Eftir að hafa tapað fyrsta settinu gegn Miomir Kecmanovic vann hann annað settið. Þriðja settið var mjög jafnt en þar tapaði Sinner naumlega eftir upphækkun. Eftir það þreyttist Kecmanovic og Sinner vann örugglega síðustu tvö settin.

Þessi leikur var gott próf fyrir þol Sinner sem reyndist vera gott en ekki leit það alltaf vel út. Í þriðja settinu datt Sinner og var lengi að standa upp eftir það. Áhorfendur óttuðust það versta en eftir að dómari fór til Sinners stóð hann upp og jafnaði sig.

Einnig blæddi úr fætinum hans Sinner í leiknum en hann útskýrði í viðtali eftir leik að það væri vegna vandamála með tánöglina hans. Sinner getur farið fullur sjálfstrausts í aðra umferð risamótsins eftir frammistöðu sína í seinustu tveim settum leiksins.

Í annarri umferð mótsins mætir Sinner Portúgalanum Nuno Borges sem er í 48. sæti heimslistans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×