„Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 30. júní 2026 08:49 Frá Hvalfirði. Vísir/Vilhelm Paul Watson-samtökin boða atlögu að olíufélaginu sem þjónustar Hval hf, í færslu á samfélagsmiðlum. Samtökin segja þar að önnur langreyðanna sem veidd hafi verið í gær hafi verið kálffull.
Þetta kemur fram í harðorðri færslu á samfélagsmiðlinum Instagram. Líkt og fram hefur komið er skip Paul Watson, Bandero, nú í íslenskri efnahagslögsögu og hefur Watson boðað aðgerðir gegn hvalveiðum Íslendinga. Varðskipið Þór hefur fylgt Bandero eftir undanfarna daga. „Tveir hvalir til viðbótar dregnir á land. Annar þeirra var kálffull kýr. Tíu hvalir drepnir það sem af er og vertíðin er varla hafin. En Bandero er að koma til Íslands og nýja aðgerðin okkar með @chilli.app er komin í loftið: Við beinum spjótum okkar að olíufélaginu sem heldur þessum drápum gangandi. Saman munum við stöðva þetta fyrir fullt og allt.“ View this post on Instagram A post shared by Paul Watson Foundation UK (@paulwatsonfoundation.uk) Leiðangursstjóri Aðgerðar 86, sem er um borð í skipinu Bandero, sagði í gær í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni að allir um borð væru tilbúnir til þess að láta handtaka sig vegna aðgerðanna. „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku til að vernda þessa hvali. Þannig að ef Landhelgisgæsla Íslands vill grípa til aðgerða til að stöðva þessa herferð þá er betra að hún hafi 27 fangaklefa tilbúna fyrir okkur,“ segir hann. Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. hefur sagt að hann trúi því ekki að íslenskir aðgerðarsinnar aðstoði ekki Paul Watson og félaga. Áður hafa Hvalavinir gagnrýnt aðgerðir Watson í samtali við fréttastofu og sagt að þeir styðji ekki aðgerðirnar. Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar sagði í Bítinu á Bylgjunni í gær að Landhelgisgæslan hefði undirbúið sig undir komu Bandero til Íslands síðan í maí. Allar aðgerðir gæslunnar miði að því að tryggja öryggi sjófarenda, einnig þeirra um borð í Bandero. Hann sagði gæsluna undirbúna undir allar sviðsmyndir. „Það er eitt af meginhlutverkum Landhelgisgæslunnar að tryggja öryggi á hafssvæðinu. Og telji Landhelgisgæslan að öryggi sjófarenda sé ógnað með einhverjum hætti þá bregðumst við við, það er okkar skylda og það er það sem við munum gera.“ Þór hafi fylgt skipinu eftir síðan í fyrradag. „Auðvitað veit Landhelgisgæslan ekki hvert skipið ætlar að sigla en auðvitað er það þannig að ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því og það er búið að teikna upp slíkar sviðsmyndir. Það skiptir máli að við tryggjum öryggi þessa fólks.“
Hvalveiðar Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Bensín og olía Hvalir Tengdar fréttir Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. segist ekki leggja neinn trúnað á yfirlýsingar aðgerðarsinna sem berjast gegn hvalveiðum hér á landi um að þeir vinni ekki með Paul Watson og félögum um borð í Bandero. Níu langreyðar hafa verið veiddar hingað til. 30. júní 2026 06:24 „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Leiðangursstjóri Aðgerðar 86, sem er um borð í skipinu Bandero, biður Íslendinga afsökunar á því að hafa komið til landsins fyrir fjórum áratugum í skjóli nætur. Þá sökkti hann tveimur hvalveiðiskipum. Hópur fólks um borð í Bandero siglir nú innan lögsögu Íslands í því skyni að binda enda á hvalveiðar. 29. júní 2026 17:42 „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir gæsluna undirbúna undir allar sviðsmyndir vegna veru skips aðgerðarsinnans Paul Watsons í efnahagslögsögu Íslands. Hann segir undirbúning hafa staðið yfir síðan í maí, aðgerðir snúist fyrst og fremst um að tryggja öryggi allra sjófarenda, einnig þeirra sem um borð eru í Bandero, skipi Watson. Sjálfur þrætir Watson fyrir það að aðgerðir hans setji annað fólk í hættu. 29. júní 2026 09:07 Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Fleiri fréttir „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Sjá meira
Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. segist ekki leggja neinn trúnað á yfirlýsingar aðgerðarsinna sem berjast gegn hvalveiðum hér á landi um að þeir vinni ekki með Paul Watson og félögum um borð í Bandero. Níu langreyðar hafa verið veiddar hingað til. 30. júní 2026 06:24
„Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Leiðangursstjóri Aðgerðar 86, sem er um borð í skipinu Bandero, biður Íslendinga afsökunar á því að hafa komið til landsins fyrir fjórum áratugum í skjóli nætur. Þá sökkti hann tveimur hvalveiðiskipum. Hópur fólks um borð í Bandero siglir nú innan lögsögu Íslands í því skyni að binda enda á hvalveiðar. 29. júní 2026 17:42
„Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir gæsluna undirbúna undir allar sviðsmyndir vegna veru skips aðgerðarsinnans Paul Watsons í efnahagslögsögu Íslands. Hann segir undirbúning hafa staðið yfir síðan í maí, aðgerðir snúist fyrst og fremst um að tryggja öryggi allra sjófarenda, einnig þeirra sem um borð eru í Bandero, skipi Watson. Sjálfur þrætir Watson fyrir það að aðgerðir hans setji annað fólk í hættu. 29. júní 2026 09:07