Tvö hundruð prósent fleiri tilkynningar um vændi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 30. júní 2026 10:05 Embætti ríkislögreglustjóra gaf út skýrsluna. Tilkynntum kynferðisbrotum fjölgaði um níu prósent fyrstu þrjá mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Þá hafa tilkynningar um vændi þrefaldast miðað við meðaltal sama tímabils síðustu þriggja ára, fjölgað um tvö hundruð prósent. Konur voru í miklum meirihluta brotaþola.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá Embætti ríkislögreglustjóra sem birt hefur nýja skýrslu um tilkynnt kynferðisbrot fyrstu þrjá mánuði ársins. Þar segir að mest áberandi sé veruleg fjölgun tilkynninga um kynferðislega áreitni og stafræn kynferðisbrot sem hafi aukist um 64 prósent milli ára auk mikillar fjölgunar tilkynninga um vændi. Á sama tímabili hafi tilkynntum nauðgunum fækkað lítilega milli ára. Á tímabilinu hafi verið tilkynnt um 153 kynferðisbrot til lögreglu, samanborið við 140 á sama tímabili árið 2025 sem er níu prósent aukning milli ára. Segir að ef litið sé til lengra tímabils megi sjá að brotin voru flest fyrstu þrjá mánuði ársins árin 2019, 2021 og 2022. Kynferðisbrotunum fækkaði eftir það en fjölgaði í ár miðað við síðastliðin þrjú ár. Segir í tilkynningunni að lögregla skrái bæði hvenær kynferðisbrotið átti sér stað og hvenær það var tilkynnt til lögreglu, þar sem í hluta mála líði langur tími þar á milli. Tölur fyrir nýleg tímabil geti því enn breyst eftir því sem eldri brot eru tilkynnt. Tilkynntar nauðganir á tímabilinu hafi verið 47, fjórum færri en á sama tímabili í fyrra. Sé hins vegar horft til brota sem áttu sér stað þessa fyrstu þrjá mánuði fjölgaði þeim milli ára, úr 34 í fjörutíu. Aukning í öllum flokkum Fram kemur að tilkynningar um kynferðislega áreitni og stafræn kynferðisbrot hafi verið 46 á tímabilinu, samanborið við 28 í fyrra og því um 64 prósenta aukningu að ræða. Samanborið við meðaltal sama tímabils síðustu þriggja ára nemi aukningin um 45 prósentum. Kynferðisbrot gegn börnum voru 29 talsins eða sextán prósent fleiri en á sama tímabili árið 2025. „Tilkynningar um vændi jukust milli ára, úr 11 málum fyrstu þrjá mánuði ársins 2025 í 19 mál á sama tímabili 2026, sem er 73 prósenta aukning. Samanborið við meðaltal sama tímabils síðustu þriggja ára þar á undan er um þreföldun að ræða eða 200 prósent aukningu. Sveiflur í þessum flokki geta tengst frumkvæðisvinnu lögreglu og aukinni áherslu stjórnvalda á skipulagða brotastarfsemi fremur en raunbreytingu á tíðni brota.“ Þá segir ennfremur að konur hafi veirð 83 prósent brotaþola í öllum tilkynntum kynferðisbrotum. Hlutfallið enn hærra í nauðgunarmálum eða 95 prósent. Hlutföllin snúist við þegar litið sé til grunaðra en karlar voru níutíu prósent þeirra sem grunaðir voru um kynferðisbrot á tímabilinu og 98 prósent grunaðra í nauðgunarmálum. Töluverður aldursmunur var milli brotaþola og grunaðra. Meðalaldur brotaþola var 24 ár en meðalaldur grunaðra 34 ára. Tæpur helmingur brotaþola eða 48 prósent var undir átján ára aldri. skýrsla_ríkislögreglustjóra_um_ofbeldisbrotPDF1.6MBSækja skjal
Lögreglumál Kynbundið ofbeldi Vændi Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Fleiri fréttir Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Sjá meira