Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 5. júlí 2026 15:09 Námið er í fyrsta sinn í boði hér á landi. vísir/vilhelm Í haust verður í fyrsta sinn hægt að stunda nám í dýralækningum hér á landi. Rektor Landbúnaðarháskóla Íslands segir umsækjendur um námið mun fleiri en reiknað var með.
Landbúnaðarháskólinn hefur gert samstarfssamning við lífvísindaháskólann í Varsjá í Póllandi. Um er að ræða nám í búvísindum með áherslu á dýraheilbrigði. „Þannig nemendur taka tvö ár hjá okkur í búvísindum með áherslu á dýraheilbrigði og fara svo beint í dýralæknanámið í Póllandi og fara þá beint inn á þriðja árið,“ sagði Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands. Þannig geti nemendur byrjað í náminu hér heima og fundið út úr því hvort námið sé eitthvað sem henti þeim án þess að þurfa að flytja úr landi strax. „Og tengist þá inn á íslenskan landbúnað og íslenskar aðstæður og myndar þá vonandi sterkan kjarnahóp sem fer þá saman út.“ Mun fleiri umsækjendur en búist var við Ragnheiður segir að lagt hafi verið upp með að ef færri en tíu myndu sækja um námið væri líklega ekki forsvaranlegt að halda því úti. „Ef það væru færri umsækjendur myndum við ekki fara af stað með námið því það er kostnaðarsamt. Við vorum að miða við að það yrðu að hámarki átján til tuttugu sem við myndum taka inn. En við fengum þrjátíu og níu umsóknir núna.“ Þrjátíu ára saga Námið hafi verið lengi í undirbúningi. „Það var mikill hugur í fólki alls staðar að koma þessu á. Ég held að þetta sé svona þrjátíu ára saga að menn hafi verið með þessar hugmyndir uppi að námið eða hluti þess yrði hér heima þannig það er mjög skemmtilegt að við getum látið þetta verða að veruleika núna.“
Landbúnaður Dýraheilbrigði Dýr Skóla- og menntamál Mest lesið Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Sjá meira