Reykjavík er að byrja á röngum enda Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar 1. júlí 2026 06:46 Undanfarna daga hefur fjölda félagsfólks Visku hjá Reykjavíkurborg verið sagt upp í nafni hagræðingar. Markmiðið er að spara nokkur hundruð milljónir króna árlega, sem er dropi í hafið í rúmlega 200 milljarða króna rekstri borgarinnar. Það er auðvelt að fá almenning til að klappa fyrir slíkum táknrænum aðgerðum. Við erum hins vegar á villigötum ef við höldum að stærstu hagræðingartækifæri Reykjavíkurborgar felist í uppsögnum verðmæts starfsfólks, án þess að baki liggi ítarleg greining og heildstæð framtíðarsýn. Við þurfum að gera betur. Stærstu sparnaðartækifærin liggja annars staðar Í janúar 2025 spurði Viska hátt í 400 sérfræðinga hjá ríkisstofnunum hvar þeir sæju helst tækifæri til hagræðingar í opinberum rekstri. Niðurstöðurnar voru skýrar. Um 86% voru hlynnt hagræðingu í opinberum rekstri og 85% sáu tækifæri til hagræðingar á ýmsum sviðum. Þegar spurt var hvar þessi tækifæri lægju, allavega í ríkisrekstrinum, komu allt önnur svör en núverandi borgarstjórn hefur boðað fyrir rekstur Reykjavíkurborgar. Langflestir bentu á aukna tæknivæðingu og nútímalegri verkferla, sem lýst var sem ævafornum. Milljörðum var sagt sóað í innkaup og rándýra útvistun verkefna og stjórnmálamenn sagðir hafa lítinn áhuga á að spara á réttum stöðum. Því miður virðist nú það sama upp á teningnum hjá Reykjavíkurborg. Táknrænar, ómarkvissar sparnaðaraðgerðir sem bitna á verðmætu fólki. Fólki sem hefur litla rödd gegn þeim háværu röddum sem tala störf þeirra niður. Sum störf sem hverfa hjá Reykjavík hafa skapað tekjur í alþjóðlegu samstarfi Í umræðunni um starfsfólk Reykjavíkurborgar gleymist að sum þeirra starfa sem nú hverfa hjá borginni hafa aflað tekna í alþjóðlegu samstarfi. Ef slík störf hverfa sparast vissulega launakostnaður en um leið hverfa tekjur, þekking og tækifæri. Það er varhugavert að líta á öll stöðugildi sem einsleitan útgjaldalið. Hvert starf þarf að meta út frá því hvaða virði það skapar, ekki eingöngu hvað það kostar. Hverfum frá táknrænum aðgerðum og horfum á heildarmyndina Það er auðveldara að segja upp fólki en að endurhanna verkferla, auðveldara að leggja niður skrifstofu en að endurskoða innkaup og auðveldara að breyta skipuriti en að innleiða nýja tækni sem breytir því hvernig borgin vinnur. Ef Reykjavíkurborg ætlar að byggja upp sjálfbærari rekstur til framtíðar þarf hún að beina sjónum að því sem skiptir mestu máli: aukinni framleiðni, betri nýtingu tækni, minni sóun í innkaupum og betra samstarfi við verðmætt starfsfólk. Borgarbúar eiga skilið meira en táknrænar aðgerðir sem leiða til aukins atvinnuleysis á erfiðum tímum. Þeir eiga skilið borg sem er rekin af metnaði, skynsemi og með langtímahagsmuni að leiðarljósi. Ekki síst starfsfólk borgarinnar sem þykir oft vænna um borgarreksturinn en stjórnmálamönnunum sjálfum. Lítum á starfsfólk Reykjavíkurborgar sem hluta af lausninni fremur en vandann. Höfundur er formaður Visku – stéttarfélags sérfræðinga Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjavík Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar