Innlent

Lokuðu götu á Ólafs­firði vegna til­kynningar um skot­vopn

Lovísa Arnardóttir skrifar
Skotvopnið reyndist svo leikfangabyssa. 
Skotvopnið reyndist svo leikfangabyssa. 

Lögreglan á Norðurlandi eystra lokaði í kvöld götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um mann með skotvopn.

„Það var tilkynnt um mann með skotvopn, sem reyndist vera leikfangabyssa,“ segir Börkur Árnason, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra á Akureyri, í samtali við fréttastofu.

Hann segir lögreglu hafa rætt við manninn og lagt hald á leikfangabyssuna. Hann segir lögreglu farna af vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×