Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja Rakel Sveinsdóttir skrifar 2. júlí 2026 07:03 Andrés Jónsson, stjórnendaráðgjafi hjá Góðum samskiptum, segir hógværð einkenna þann hóp stjórnenda sem nú má sjá á nýjum 40/40 lista. Listinn samanstendur af afreksfólki stjórnenda í atvinnulífinu sem eru yngri en fjörtíu ára og þykja líkleg til að ná langt í starfsframa. Vísir/Vilhelm „Jú, ég tók eftir einu sérstaklega sem kannski tengist þessari mýkt en þó ekki,“ segir Andrés Jónsson stjórnendaráðgjafi um nýja 40/40 listann.
Sem nú er kominn út í fimmta sinn og samanstendur af fjörutíu einstaklingum sem teljast framúrskarandi í sínu stjórnendahlutverki og eru um eða undir fertugt. „Ég myndi segja að hógværð sé eitthvað sem einkenni hópinn í ár. Þetta er mikið til fólk sem fær sínar stöður vegna þekkingar sinnar og fagmennsku frekar en að tala hæst eða taka mest pláss. Þau njóta virðingar samstarfsfólks fyrir að þekkja sitt svið mjög vel, vera samviskusöm og kunna að leyfa öðru fólki að njóta sín.“ Einhverjum kynni að finnast þetta hljóma eins og jákvæðnislofræða. Svo er þó ekki. Horfum aðeins til baka. Þegar orð eins og að vera sleggja, nagli, að eiga sviðið, vera hörð í horn að taka og svo framvegis. Allt voru þetta orð sem við frekar notuðum sem lýsingarorð yfir þá sem eitt sinn þóttu afreksfólkið í atvinnulífinu og sem oftast urðu stjórnendur. En tímarnir breytast og mennirnir með. „Stjórnendafræðinni hefur fleygt fram og ný hugsun komið inn,“ segir Andrés og nefnir dæmi: „Teymisvinna, mannauður, starfsánægja, þjálfun og samskipti skipta nú miklu meira máli en áður.“ Afreksfólkið í atvinnulífinu Nýja 40/40 listann og umsagnir um hvern og einn má lesa HÉR. Til að komast á listann þurfa stjórnendur að vera tilnefndir og ólíkt sambærilegum listum erlendis er aðeins hægt að komast á listann einu sinni. Fólk er tilnefnt, óskað er eftir ábendingum og spurst er frekar fyrir um fólk það sem nefnt er. Til dæmis hjá forstjórum, eigendum fyrirtækja eða stjórnarfólki. „Það hefur breyst frá því sem áður var að stjórnendur eða eigendur vildu helst ekki láta okkur vita af sínu besta fólki þegar við vorum að vinna í listanum. Af ótta við að því yrði þá stolið af öðrum,“ segir Andrés og brosir. „Nú vilja stjórnendur láta sjást að þeir kunni að velja og fá til sín hæfasta fólkið. Ef eitthvað er myndi ég segja að margt fólk í stjórnum og í eigendahópum væru jafnvel bestu klappstýrurnar.“ En það er ekki nóg að vera tilnefndur sem góður stjórnandi undir fertugu, því viss hópur er útilokaður fyrirfram. „Við erum fyrst og fremst að horfa á stjórnendur sem eru að vinna hjá öðrum og eru líklegir til að flytja sig á milli starfa eða þróast áfram í sínum starfsferli,“ segir Andrés og útskýrir: „Þetta þýðir að viss hópur, sem eru engu að síður oft framúrskarandi einstaklingar, fellur utan þeirra skilyrða að komast á listann. Til dæmis stjórnendur í rótgrónum fjölskyldufyrirtækjum sem eru þar vegna fjölskyldutengsla, stjórnendur sem hafa stofnað eða keypt sinn eigin rekstur, eru hluteigendur í fyrirtækjum eða fólk sem starfar sem lögmenn eða endurskoðendur og eru líklega að fara að starfa sem slíkir út starfsævina og svo mætti áfram telja.“ Þau eru á nýja 40/40 listanum, sem Góð samskipti stendur að. Listinn kemur út annað hvert ár en ólíkt sambærilegum listum erlendis, getur fólk aðeins verið einu sinni á 40/40 listanum á Íslandi.Góð samskipti Afrekslistinn í ár er fjölbreyttur sem fyrr. Samanstendur af stjórnendum í ólíkum geirum eins og fjármálageiranum, flugi, sjávarútvegi, verslun, orku- og innviðafyrirtækjum, hugbúnaðar- og tæknifyrirtækjum, lyfja- og heilbrigðisgeiranum, fasteignarekstri og framleiðsluiðnaði. „Ólíkt sumum sambærilegum listum erlendis er þó aðeins hægt að komast einu sinni á listann. Það skýrir meðal annar að það eru færri í æðstu stjórnendastörfum á listanum nú miðað við oft áður.“ Hópurinn spannar jafnframt fjölbreytt ábyrgðarsvið, allt frá fjármálum, stefnumótun og fjárfestingum til mannauðsmála, rekstrar, sölu, markaðsmála, vöruþróunar og leiðarkerfisstjórnunar. „Á Íslandi er algengara en víða erlendis að stjórnendur geti flutt sig á milli atvinnugreina. Hér getur stjórnandi fært sig á milli mjög ólíkra geira. Smæð landsins hefur þannig bæði kosti og galla. Tækifærin eru að sumu leyti færri vegna smæðar markaðarins. Á móti má benda á hreyfanleikann sem getur skilað sér í meiri reynslu stjórnenda, víðsýni og aðlögunarhæfni.“ Stjórnandi árið 2026 þarf að búa yfir allt annari hæfni í dag miðað við áður. Enda segir Andrés gamlar hugmyndir um leiðtogann vera að víkja. Í dag þyki það að vera hávær og afdráttarlaus ekki endilega merki um að vera sterkur stjórnandi.Vísir/Vilhelm Látlausari leiðtogastíll Andrés segir að það hafi því miður gerst í annað sinn við gerð 40/40 listans að þessu sinni, að ekki valdist á listann stjórnandi af erlendu bergi brotinn. Það sé viss endurspeglun á stöðunni í atvinnulífinu. Ef horft er til annars en uppruna upplifi hann þó meiri fjölbreytileika meðal stjórnenda nú en áður. „Eitt sinn voru það rótgrónu fyrirtækin eins og Eimskip, Icelandair eða bankarnir sem framleiddu flesta stjórnendur fyrir atvinnulífið. Þetta hefur mikið breyst því í dag eru mjög mörg fyrirtæki í mörgum ólíkum geirum að þjálfa upp og efla stjórnendur. Fagleg stjórnun er einfaldlega orðin mun algengari í dag en áður.“ Kröfur til stjórnenda séu líka meiri nú. Stjórnandi árið 2026 þarf að allt aðra hæfni og í dag búa stjórnendur yfir mun meiri og formlegri þekkingu á stjórnun en forstjórar gerðu kannski fyrir tuttugu árum.“ Menntun sé orðin meiri og önnur en áður, verkfærin fleiri og fræðin sífellt að vaxa í umfangi. Gamlar hugmyndir um leiðtogann eru að víkja. Nú er stjórnendum ekki ráðlagt að þeir þurfi sífellt að láta taka eftir sér og allir þurfi að vita þegar þeir mæta í rýmið. Það að vera hávær og afdráttarlaus þykir ekki endilega lengur merki um að vera sterkur stjórnandi. Allt eru þetta hugmyndir mótaðar af fyrri tíma,“ segir Andrés og lýsir því hvernig mun látlausari leiðtogastíll virðist nú einkennandi. „Einkennandi í fari þeirra sem eru á 40/40 listanum í dag er að þetta er fólk sem leiðir frekar í gegnum virðingu og þekkingu en að fara fram með háreysti og skömmum.“ Andrés rifjar upp þá tíma þegar talað var um hefnd busanna (e. revenge of the nerds) í kringum netbóluna um aldamótin. „Ég ætla nú ekki að taka það djúpt í árinni að líkja þessu alveg saman. En myndi þó segja að í dag er meira svigrúm fyrir ólíkar manngerðir. Fólk sem eitt sinn hefði jafnvel varla verið tekið eftir er í dag oft að ná mjög langt í atvinnulífinu.“ Þróun og vöxtur í stjórnun á Íslandi gefi fullt tilefni til bjartsýni. „Reglulega er talað um að allt sé að fara á versta veg en þegar ég horfi á þennan lista finnst mér að fullt tilefni sé til bjartsýni. Þarna er margt fólk sem er líklegt til að gegna lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi þegar fram í sækir. Og það er mjög ánægjulegt að sjá að þetta er ekki aðeins hópur af mjög hæfileikaríku fólki sem kann að byggja upp traust og starfa vel í teymum, heldur eru þetta líka hógværir einstaklingar sem kunna þá list að gefa öðrum tækifæri til að blómstra.“
Stjórnun Mannauðsmál Starfsframi Tengdar fréttir Nýr 40/40 listi: „Spenntur að sjá hvað þetta fólk gerir í framtíðinni“ „Það sem mér finnst þessi hópur stjórnenda eiga sameiginlegt, er að þetta eru stjórnendur sem segja má að tilheyri nýja skólanum í viðskiptalífinu,“ segir Andrés Jónsson, framkvæmdastjóri Góðra samskipta um nýjan 40/40 listann, sem birtur var á dögunum. 3. júlí 2024 07:00 Nýr 40/40 listi: „Augljóst að mjúkir hæfileikar eru að hjálpa fólki að ná langt“ Nýr 40/40 listi er kominn út en hann er samantekt á rísandi stjörnum í atvinnulífinu. Nafnalistann má sjá neðst í grein. 16. mars 2022 07:01 „Ég var búinn að heyra stríðssögur um hvað fyrstu mánuðirnir væru erfiðir“ „Það má segja að bankahrunið hafi gefið mér þá hugmynd. Ég lá yfir öllum fréttasíðum og las allt sem ég gat um hrunið. Hagfræðin gaf mér tækifæri til að skilja betur hvernig fjármálakerfið gat umturnað heilu þjóðfélagi,“ segir Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, þegar hann útskýrir hvers vegna hann fór í meistaranám í fjármálahagfræði í Oxford í Bretlandi. 7. júlí 2024 09:00 „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ „Við erum að missa það frá okkur að leyfa krökkum að vinna. Mér finnst það miður,“ segir Ásta Sigríður Fjeldsted forstjóri Festi. 29. desember 2024 08:00 „Erum óhrædd við lausnir og reynum ekki að vera ofurforeldrar“ „Við erum óhrædd við lausnir og reynum ekki að vera ofurforeldrar eða ofurpar. Við nýtum okkur þá aðstoð sem við getum fengið því það er mikilvægt að átta sig á því að við getum ekki verið 100% í öllu,“ segir Hrefna Sif Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Tixly á Íslandi. 1. maí 2023 07:00 Mest lesið Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Viðskipti innlent Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja Atvinnulíf Thule lækkar í prósentu Neytendur Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Samstarf Mango opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Uppsagnir fram undan og óttinn vex Munu opnu vinnurýmin hverfa eins og hornskrifstofurnar? Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Verðmæta samtalið er oft við kaffivélina eða á ganginum Sumarfrísdagur númer átta mesta sælan Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Meiri árangur í líkamsrækt og íþróttum með nýrri íslenskri tækni Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Sjá meira
Nýr 40/40 listi: „Spenntur að sjá hvað þetta fólk gerir í framtíðinni“ „Það sem mér finnst þessi hópur stjórnenda eiga sameiginlegt, er að þetta eru stjórnendur sem segja má að tilheyri nýja skólanum í viðskiptalífinu,“ segir Andrés Jónsson, framkvæmdastjóri Góðra samskipta um nýjan 40/40 listann, sem birtur var á dögunum. 3. júlí 2024 07:00
Nýr 40/40 listi: „Augljóst að mjúkir hæfileikar eru að hjálpa fólki að ná langt“ Nýr 40/40 listi er kominn út en hann er samantekt á rísandi stjörnum í atvinnulífinu. Nafnalistann má sjá neðst í grein. 16. mars 2022 07:01
„Ég var búinn að heyra stríðssögur um hvað fyrstu mánuðirnir væru erfiðir“ „Það má segja að bankahrunið hafi gefið mér þá hugmynd. Ég lá yfir öllum fréttasíðum og las allt sem ég gat um hrunið. Hagfræðin gaf mér tækifæri til að skilja betur hvernig fjármálakerfið gat umturnað heilu þjóðfélagi,“ segir Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, þegar hann útskýrir hvers vegna hann fór í meistaranám í fjármálahagfræði í Oxford í Bretlandi. 7. júlí 2024 09:00
„Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ „Við erum að missa það frá okkur að leyfa krökkum að vinna. Mér finnst það miður,“ segir Ásta Sigríður Fjeldsted forstjóri Festi. 29. desember 2024 08:00
„Erum óhrædd við lausnir og reynum ekki að vera ofurforeldrar“ „Við erum óhrædd við lausnir og reynum ekki að vera ofurforeldrar eða ofurpar. Við nýtum okkur þá aðstoð sem við getum fengið því það er mikilvægt að átta sig á því að við getum ekki verið 100% í öllu,“ segir Hrefna Sif Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Tixly á Íslandi. 1. maí 2023 07:00