Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar 2. júlí 2026 08:01 …við verri lífskjörum. Erum efst á lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna og myndum alltaf borga miklu meira inn í skuldum vafið Evrópusamband en skilaði sér til baka. Notum þá peninga hér heima. ...við að verðbólgu og þar með vöxtum verði áfram haldið uppi um árabil til þess að auka líkurnar á því að þjóðin samþykki einnig inngöngu í ESB. „Nei“ þýðir að sá pólitíski hvati verði ekki lengur fyrir hendi og hægt verði að einbeita sér að efnahagsmálunum. …við að þenja út báknið sem verður nauðsynlegt, skv ESB, þegar aðlögun hefst samhliða viðræðum. …við áralangri óvissu á meðan skriffinnar möndla með fullveldi þjóðarinnar. …við ESB-her, veljum friðinn. …við að setja tvíhliða varnarsamstarf við Bandaríkin í uppnám. …við að setja í uppnám um 70 fríverslunarsamninga okkar við ríki um allan heim. …við að borga meiri tolla af vörum frá ríkjum utan ESB. T.d. frá Temu og Shein, ESB er ekki með tvíhliða fríverslunarsamning við Kína eins og Ísland. …við minna matvælaöryggi vegna þess að matvælaframleiðsla myndi líklega snarminnka hérlendis. …við að gefast upp á að vinna niður vextir og verðbólgu, ESB gerir það ekki fyrir okkur. Við þyrftum að gera það sjálf áður en í boði væri að taka upp evruna. …við að veita verulegt umboð til utanríkisráðherra sem á allt undir ESB-aðild enda flokkur hennar stofnaður í kringum inngöngu í sambandið. …við að ,,skoða“ í pakka sem hefur verið opinn árum saman. Í þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um þjóðaratkvæðið kemur beinlínis fram að full aðlögun að ESB hefst ef það verður ,,já“ í sumar áður en samningur lægi fyrir: ,,Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum, eins og Ísland lagar sig að reglum innri markaðar ESB samkvæmt EES-samningnum.“ …við að sóa tíma og fjármunum í gæluverkefni 15% stjórnmálaflokks á kostnað brýnni mála. Við höfum nóg annað með peningana og tímann að gera. …við að andlistlausir, erlendir skriffinnar sem enginn kaus komi að stýringu Íslands. …við að gefa baráttu forfeðra okkar langt nef, t.d. baráttu fyrir sjálfstæði og landhelginni. …við áralöngum leiðindum um það hve mikið við þurfum að gefa eftir af okkar yfirburðalífskjörum til að fá koll við langborð risaþjóðanna. Ekkert annað kemst að á meðan árum saman. ...við því að farið sé að stað í slíka vegferð þegar ekki er meirihluti fyrir því á meðal þjóðarinnar, ekki þingmeirihluti og hvorki stuðningur við það hjá verkalýðshreyfingunni né atvinnulífinu. …við að umboðsmenn erlends valds fái að ganga í sjóði okkar Íslendinga. Erum með vel fjármagnaða lífeyrissjóði en lífeyrismál Evrópuríkja eru í rulsflokki. …við að láta erlend öfl hafa beinan aðgang að auðlindum okkar Íslendinga. …við að opna á aukið atvinnuleysi, sérstaklega í röðum unga fólksins okkar. Ekki viljum við minnka forsætisráðherra sem sagði að ESB-umsókn væri ekki á dagskrá enda þyrfti stór meirihluti þings og þjóðar að vilja inn en ekki bara 15% sérhagsmunaflokkur. Segjum ,,Nei“ 29.08. Stöndum í fæturna eins og þjóðin gerði í Icesave og þorskastríðunum. Leyfum ekki skuldsettu ESB að draga okkur á tálar. Áfram Ísland! Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Pétur Zimsen Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
…
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar