Jón Pétur Zimsen

Þetta unga fólk getur bara haldið kjafti
Það er jákvætt þegar fólk afhjúpar sig. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins, var margoft búinn að segja, með stuðningi Samfylkingar og Viðreisnar, að þetta unga fólk ætti ekkert erindi fyrir allsherjar- og menntamálanefnd.

Karlar, piltar og strákar
Eftir að hafa lesið góðan pistil Þráins Farestveit, afbrotafræðings og framkvæmdastjóra Verndar, í Morgunblaðinu langar mig að stinga niður penna og taka saman nokkrar tölfræðiupplýsingar sem byggja á opinberum tölum og rannsóknum frá Hagstofu Íslands, Fangelsismálastofnun, Landlæknisembættinu og Vinnueftirlitinu (sjá að neðan).

Brýr, sýkingar og börn
Hvernig ætli það væri ef brýr um land allt hefðu gefið sig sl. áratugi, þær væru nú fjölmargar ónothæfar og ástandið hefði orsakað fjöldann allan af alvarlegum slysum?

Nú þurfa foreldrar að vera hugrakkir
Við höfum séð þetta áður. Við fjármálahrunið 2008 voru merki um að stefndi í stórslys, en lítið var aðhafst fyrr en allt var komið í óefni.

Að mása eða fara í golf
„Ég get ekki annað en velt fyrir mér virðingu þeirra sem leika þennan leik gagnvart tíma fólks sem starfar á Alþingi.“ Svona másar Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sig hása í grein á Vísi fyrr í dag þar sem hún viðurkennir að hún sé enn að reyna að skilja hvernig lýðræðisleg umræða gengur fyrir sig á Alþingi.

Leiðin til helvítis
Í vikunni hef ég vakið athygli á málefnum drengja og ungra manna (sjá FB-síðu mína). Það er ekki gert í þeim tilgangi að fórnarlambsvæða þúsundir einstaklinga, heldur að vekja athygli á því umhverfi og þeirri orðræðu sem við þeim virðist blasa í dag og þá stöðu sem skapast getur vegna þess.

10 ár og bull í lokin
Af hverju fá börn og unglingar ekki að njóta sannmælis? Af hverju er komið fram við þau með hætti sem enginn fullorðinn myndi nokkru sinni sætta sig við?

Stöndum með börnum
Við búum í landi ofgnóttar, það má segja að hér drjúpi smjör af hverju strái. Náttúran hefur gefið okkur margt t.d.: Hreina loftið, heitt vatn úr iðrum jarðar, yndislegt kalt vatn, sjávarauðlindina, græna raforku og hrein íslensk matvæli.

Samræmd próf jafna stöðuna
Áhrifamikið fólk í skólamálum hefur haft horn í síðu samræmdra prófa og fundið þeim eitthvað til foráttu og má þar nefna þrennt helst.

Gulur, rauður, blár og B+
Aðalnámskrá grunnskóla (ANG) er leiðarvísir skólanna að námi barna. Þessi leiðarvísir er ónýtur. Kennarar reyna að vinna eftir leiðarvísi sem ómögulegt er að vinna eftir. Það er mjög íþyngjandi að mæta í vinnuna dag hvern og kljást við óskiljanlega orðasúpu.

Orð skulu standa
Það er freistandi fyrir stjórnmálamenn, sérstaklega í aðdraganda kosninga, að lofa hinu og þessu eða segjast ætla að gera flest fyrir marga og þannig sópa að sér atkvæðum hjá vongóðum kjósendum. Þessi hegðun getur þó skaðað mikið, bæði fyrir þann sem skapar væntingar og þá sem verða fyrir vonbrigðum. Ein okkar mikilvægasta stétt, kennarar, er því miður á leið í verkfall, enn á ný, því óralangt virðist vera á milli deiluaðila.

21 blár
Að starfa í skóla er krefjandi en um leið mjög gefandi. Hluti af lífsgæðum er að starfa í góðu starfsumhverfi en pottur virðist vera brotinn hvað þetta varðar í skólum landsins. Tíð langtímaveikindi kennara og mikill veltuhraði skólastjórnenda eru raunvandi, hann þarf að vinna með.