Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar 2. júlí 2026 17:30 Það er eðlilega mikil umræða um sjálfstæði og fullveldi þjóðar í tengslum við komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Mat fólks á sjálfstæði er oft meira tengt tilfinningum og upplifun frekar en mælanlegum staðreyndum. Hvort fylgir t.d. meira sjálfstæði fyrir ungmenni að öðlast löggilt sjálfræði, við 18 ára aldur, eða að flytja að heiman og búa sjálfur í eigin húsnæði? Hefur sjálfstæði sveitarfélags gagnvart ríkinu jafnvel meiri áhrif á þig en skilgreint sjálfstæði ríkisins gagnvart ýmsum fjölþjóðastofnunum? Allt saman eru þetta bara vangaveltur. Það er þó til mælanleg staða á ákveðinni gerð sjálfstæðis þjóða en það er orkuöryggi eða orkusjálfstæði. Þetta er mælikvarði á hversu þjóð er háð innflutningi á orku til að sinna þörfum eigin samfélags. Tvisvar á örfáum árum hafa misvitrar ákvarðanir erlendra leiðtoga leitt af sér alþjóðlegt krísuástand í orkumálum. Flestar þjóðir höfðu ekkert með orsökina að gera en flestar lentu hins vegar í afleiðingunum. Ástæðan er einföld þ.e. allar þjóðir eru með einhverjum hætti háðar jarðefnaeldsneyti en aðeins örfáar þjóðir framleiða þetta sama eldsneyti. Staða íslands Orkunotkun má gróflega skipta í þrjá meginflokka. Raforkunotkun, hitun og svo flutningar á fólki og vörum. Í þessari grein er ekki fjallað um fiskiskip sem er efni í aðra umfjöllun. Staða Íslands er einstök því að í fyrstu tveimur notkunarflokkunum er hlutfall íslenskrar orku 100% og þar með fullt orkusjálfstæði. Þetta þýðir að við erum að stórum hluta ónæm fyrir erlendum orkukreppum og óróa þegar kemur að því að framleiða raforku og sinna húshitun. En staðan er allt önnur þegar kemur að fólks- og vöruflutningum. Góðu fréttirnar eru að í þessum flokki hefur einokun erlendrar olíu verið rofin með íslenskri orku. Vondu fréttirnar eru að enn er olían allt of ráðandi. Gróflega má setja upp stöðu orkusjálfstæðis fyrir mismunandi notkun á eftirfarandi hátt: Gerð Hlutfall erlendrar olíu Hlutfall íslenskrar orku Fólksbílar 79% 21% Sendibílar 93% 7% Minni vörubílar 93% 7% Stærri vörubílar 98% 2% Hópferðabílar 96% 4% Vélar og tæki 100% 0% Taflan sýnir að, þrátt fyrir að íslensk orka sé til staðar, hér og þar, þá er þjóðin gríðarlega háð erlendri olíu með tilheyrandi orkuóöryggi. Á mannamáli þýðir þetta einfaldlega að þó Ísland kæmi sér upp öflugum landher til að verja landið þá skiptir það litlu þar sem mjög auðvelt er að lama þjóðina á örfáum mánuðum án þess að hleypa af einu skoti. Það eina sem þarf til er einfaldlega að hindra olíuflutninga til landsins með einum eðaöðrum hætti. Þetta gildir líka fyrir fæðuöryggi þar sem bæði matvælaframleiðsla og flutningar eru háðir erlendri olíu. Lausnin er komin, hvað ætlar þú að kjósa? Með rafvæðingu samgangna getum við auðveldlega öðlast orkusjálfstæði á landi á örfáum áratugum. Enn merkilegra er að það mun kosta okkur minna en olíudrifna kerfið sem við búum við núna. Samtala kaups og reksturs rafknúinna ökutækja er eða verður minni fyrir stærstan hluta samgöngutækja á komandi árum. Sem sagt, meira orkusjálfstæði fyrir minni pening. Það eina sem stendur í veginum er ákvörðun landsmanna og fyrirtækja að kjósa með orkusjálfstæði við næstu ökutækjakaup. Þessar ákvarðanir verða ekki gerðar í kjörklefa heldur með framtíðar fjárfestingaákvörðunum. Valið er einfalt þ.e. viljum við kjósa erlenda mengandi olíu eða hreina íslenska orku. Höfundur er sviðsstjóri orkuskipta og hringrásarhagkerfis hjá Umhverfis- og orkustofnun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Ingi Friðleifsson Umhverfismál Orkuskipti Samgöngumál Loftslagsmál Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar