Funda um niðurstöðu héraðsdóms Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. júlí 2026 12:27 Eyþór Harðarson er formaður bæjarráðs Vestmannaeyjabæjar. Vísir/Ívar Fannar Fulltrúar bæjarstjórnar Vestmannaeyjabæjar funda í vikunni með lögmönnum sínum eftir að Héraðsdómur Suðurlands sýknaði Vinnslustöðina, Hugin og Vís tryggingar af kröfum bæjarins. Bærinn krafðist tæpra tveggja milljarða vegna tjóns sem varð á vatnsleiðslu. „
Viðbrögðin okkar eru að fara yfir dóminn og við í rauninni tjáum okkur ekkert um niðurstöðu dómsins,“ segir Eyþór Harðarson, formaður bæjarráðs Vestmannaeyjabæjar, í samtali við fréttastofu. Það var í nóvember 2023 þegar fiskveiðiskipið Huginn VE-55 var á leið til hafnar í Vestmannaeyjum. Á siglingunni hafði skipið misst niður akkeri sitt sem dróst með hafnbotninum án þess að skipverjar tækju eftir því. Akkerið kræktist í vatnslögn sem liggur til Vestmannaeyja og ljósleiðara með þeim afleiðingum að ljósleiðarinn fór í sundur og vatnslögnin skemmdist. Sjá nánar: Skemmd neysluvatnslögn í Eyjum Vestmannaeyjabær og Ljósleiðari ehf. höfðuðu mál gegn Vinnslustöðinni hf., sem á útgerðarfélagið Hugin ehf., sem á skipið Hugin VE-55. Tryggingafélagið Vís er vátryggjandi skipsins. Kröfðust stefnendurnir tæpra tveggja milljarða króna í bætur. Krafan byggði meðal annars á því að það teljist fullsannað að tjóninu hafi verið valdið af stórfelldu gáleysi og að félögin þrjú beri fulla ábyrgð gagnvart íbúum Vestmannaeyja. Í dómnum, sem er sextíu blaðsíður, er málsatvikum lýst og rökum dómsins fyrir sýknu lýst. Taldi dómurinn að ekki væri hægt að fallast á málsástæður Vestmannaeyjabæjar og Ljósleiðara. Eyþór segist eiga fund með lögmönnum bæjarins í vikunni þar sem staðan verður metin og ákvörðun tekin hvort bærinn áfrýji dómnum. Hann vill ekki tjá sig að öðru leyti um málið og vísar í tilkynningu sem birt var á heimasíðu Vestmannaeyja í gær.
Vestmannaeyjar Skemmd neysluvatnslögn í Eyjum Dómsmál Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira