Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Sindri Sverrisson skrifar 8. júlí 2026 13:02 Árborg og Selfoss hafa aldrei áður mæst í mótsleik. Leikurinn í kvöld verður styrktarleikur vegna veikinda móður Arons Fannars Birgissonar en hann hefur leikið með báðum liðum. UMF Selfoss Sannkallaður tímamótaleikur verður á Selfossi í kvöld sem jafnframt er sérstakur styrktarleikur vegna glímu móður leikmanns Selfoss við illvígt krabbamein.
Nágranna- og vinaliðin Selfoss og Árborg hafa aldrei mæst í mótsleik í fótbolta en það breytist í kvöld klukkan 19, þegar þau eigast við á JÁVERK-vellinum í 16-liða úrslitum Gatorade-bikarsins – bikarkeppni neðrideildarliða. Leikurinn verður jafnframt styrktarleikur en það er vegna veikinda Helgu Guðmundsdóttur, móður Arons Fannars Birgissonar sem er leikmaður Selfoss. Að hennar ósk mun allur ágóði renna óskertur til heimahjúkrunar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi. Aron Fannar er í hópi þeirra leikmanna sem spilað hafa bæði fyrir Árborg og Selfoss en hann skoraði fimm mörk í níu leikjum sem lánsmaður hjá Árborgarliðinu sumarið 2022. Hann hefur verið fastamaður í liði Selfoss síðustu ár. Eins og sjá má hér að neðan er ýmislegt á dagskránni á JÁVERK-vellinum í kvöld, fyrir utan leikinn sjálfan en hann hefst eins og fyrr segir klukkan 19. Miðasala á leikinn er í gegnum Stubb og að sjálfsögðu er öllum frjálst að kaupa miða hvort sem fólk kemst á leikinn eða ekki.
Íslenski boltinn UMF Selfoss Árborg Mest lesið Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Lebron talaði hreint út Körfubolti Kristall fékk tveggja leikja bann Fótbolti Heimsmeistarinn biðst afsökunar: „Tilfinningarnar báru mig ofurliði“ Formúla 1 Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Enski boltinn „Það hefur enginn áhuga á að hlusta á það“ Fótbolti Ítalir völtuðu yfir Tyrki í Tyrklandi Fótbolti Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Vill hverfa frá núverandi fyrirkomulagi í Bestu deildinni „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Gaui Þórðar opnar sig um veikindi: „Erfiðir dagar, mánuðir og vikur“ Sjá meira