Dóra Björt ráðin deildarstjóri Árni Sæberg skrifar 8. júlí 2026 15:10 Dóra Björt Guðjónsdóttir var lengi vel borgarfulltrúi Pírata áður en hún færði sig yfir í Samfylkinguna skömmu fyrir sveitarstjórnarkosninga í vor. Henni var hafnað í prófkjöri Samfylkingarinnar og uppstillingu í kjölfarið. Vísir/Vilhelm Dóra Björt Guðjónsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri höfuðborgardeildar Rauða krossins og mun hefja störf þann 1. september næstkomandi.
Í tilkynningu þess efnis á vef Rauða krossins segir að höfuðborgardeild Rauða krossins sé stærsta deild félagsins og sinni fjölmörgum mannúðarverkefnum á höfuðborgarsvæðinu öllu. Starfsmenn séu um 35 talsins og sjálfboðaliðar um 600. Undir deildina heyri skaðaminnkunarverkefnin Ylja og Frú Ragnheiður, verkefni tengd félagslegum stuðningi við flóttafólk sem og við fólk sem er að afplána fangelsisdóma eða hefur nýlokið þeim. Þá haldi deildin úti margvíslegum félagslegum verkefnum, svokölluðum vinaverkefnum, sem miða að því að auka virkni fólks og rjúfa félagslega einangrun þess. Einnig heyri kvennadeild, sem nú hafi starfað í sextíu ár, undir höfuðborgardeildina. Dóra Björt sé með BA-gráður í bæði heimspeki og alþjóðafræðum frá Óslóarháskóla og diplómu á meistarastigi í alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands. Hún sé 38 ára. Dóra búi að fjölbreyttri reynslu þar sem mannréttindi, félagsleg þátttaka og þjónusta við ólíka hópa séu grunnstef. Í átta ár hafi hún gengt ýmsum leiðtogahlutverkum sem borgarfulltrúi í borgarstjórn og sem oddviti og formaður fagráða, stýrihópa og stjórna fyrirtækja. Í þeim störfum hafi hún meðal annars beitt sér fyrir því að skaðaminnkun yrði skilgreind sem leiðarljós í velferðarstefnu borgarinnar og stutt uppbyggingu „Húsnæði fyrst“-úrræða. Þá hafi hún einnig unnið að mannréttinda- og jafnréttismálum á vettvangi félagasamtaka, bæði á Íslandi og í Noregi. „Ég hef lengi haft brennandi áhuga á samfélagsmálum, mannréttindum og þjónustu við fólk í viðkvæmri stöðu. Því er það bæði mikill heiður og mikil ábyrgð að fá tækifæri til að leiða höfuðborgardeild Rauða krossins. Rauði krossinn gegnir einstöku og mikilvægu hlutverki, bæði í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu, og ég hlakka til að vinna með öflugu starfsfólki, sjálfboðaliðum og samstarfsaðilum. Markmið mitt verður að byggja á þeim sterka grunni sem þegar hefur verið lagður, styðja við starfsfólk og sjálfboðaliða og leggja mitt af mörkum til að þróa starfsemina áfram þannig að hún nýtist sem best þeim sem á henni þurfa að halda, í anda mannúðar, fagmennsku og virðingar,“ er haft eftir Dóru Björtu. Loks segir að Rauði krossinn hlakki til samstarfsins við Dóru Björtu og þakki Ósk Sigurðardóttur, fráfarandi deildarstjóra, jafnframt kærlega fyrir samstarfið og óski henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.
Vistaskipti Samfylkingin Félagasamtök Mest lesið Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Sjá meira