Sport

Dag­skráin: Stjarnan í Evrópu, N1-mót drengja og Besta kvenna aftur af stað

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Emil Atlason og félagar í Stjörnunni spila mikikvægan leik í kvöld.
Emil Atlason og félagar í Stjörnunni spila mikikvægan leik í kvöld. Vísir / Diego

Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á fimmtudögum.

Stjörnumenn fá færeyska félagið Víking frá Götu í heimsókn í Sambandsdeildinni og þurfa góð úrslit fyrir seinni leikinn.

Besta deild kvenna í fótbolta er að fara aftur af stað eftir smá frí vegna Evrópumóts nítján ára landsliðsins.

Fjórir leikir verða í beinni í dag og þar á meðal er leikur FH og Þróttar í Kaplakrika.

Í kvöld verður einnig þáttur af Sumarmótunum þar sem fjallað verður um N1-mót drengja sem fór fram á Akureyri um síðustu helgi.

Það verður einnig sýnt frá snókermóti og tveimur golfmótum.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

Sýn Sport Ísland

Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá fyrri leik Stjörnunnar og Víkings úr Garðabæ í 1. umferð Sambandsdeildarinnar.

Sýn Sport Ísland 2

Klukkan 19.05 hefst bein útsending frá leik FH og Þróttar í tíundu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta.

Sýn Sport Ísland 3

Klukkan 19.05 hefst bein útsending frá leik Fram og Breiðabliks í tíundu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta.

Sýn Sport Ísland 4

Klukkan 19.15 hefst bein útsending frá leik Þór/KA og Grindavíkur/Njarðvíkur í tíundu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta.

Sýn Sport Ísland 5

Klukkan 17.50 hefst bein útsending frá leik Víkings og ÍBV í tíundu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta.

SÝN Sport

Klukkan 20.00 hefst nýjasti þátturinn af Sumarmótunum þar sem fjallað verður um N1-mót drengja sem fór fram á Akureyri um síðustu helgi.

SÝN Sport 4

Klukkan 10.00 hefst bein útsending frá The Amundi Evian Championship-golfmótinu á LPGA-mótaröðinni.

SÝN Sport 5

Klukkan 10.00 hefst bein útsending frá Genesis Scottish Open-golfmótinu á DP World Tour-mótaröðinni.

SÝN Sport Viaplay

Klukkan 10.00 hefst bein útsending frá snókermóti hjá Championship League Snooker.

Klukkan 15.30 hefst bein útsending frá snókermóti hjá Championship League Snooker.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×