Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sindri Sverrisson skrifar 11. júlí 2026 20:13 Hin sænska Tove Alexandersson setti glæsilegt brautarmet í Laugavegshlaupinu 2026. ÍBR Hin sænska Tove Alexandersson, heimsmeistari í utanvegahlaupi, stórbætti brautarmet kvenna í Laugavegshlaupinu í dag. Þorsteinn Roy Jóhannsson hljóp þó hraðar og vann karlaflokkinn þriðja árið í röð.
Yfir 700 hlauparar tóku þátt og lögðu af stað frá Landmannalaugum í morgun, hina krefjandi leið yfir Laugaveginn að Húsadal í Þórsmörk, við nokkuð góðar aðstæður hvað veður snertir. Smávægilegur mótvindur gerði vart við sig og það hlýnaði þegar nær dró endamarkinu en þar biðu fjölmargir áhorfendur eftir keppendum og fögnuðu glæsilegum árangri. Tove Alexandersson vann kvennaflokkinn á 4:14:08 klukkutímum, algjörlega stórkostlegum tíma, í sínu fyrsta Laugavegshlaupi. Hún bætti þannig brautarmet Andreu Kolbeinsdóttur sem átti fjóra bestu tíma kvenna í laugavegshlaupinu. Brautarmet Andreu frá árinu 2023 var 4:22:56 klukkutímar. Tove vann feykilega öruggan sigur í kvennaflokki en næst á eftir henni varð Íris Anna Skúladóttir á 4:57:38 og í þriðja sæti varð Helga Bergsdóttir á 5:02:35. Þorsteinn Roy Jóhannsson hefur nú unnið Laugavegshlaupið þrjú ár í röð.ÍBR Þorsteinn Roy Jóhannsson hljóp hins vegar hraðast allra en hann vann karlaflokkinn á 4:06:35 klukkutímum. Hann á þar með þrjá af sjö bestu tímum sem náðst hafa í brautinni en aðeins Arnar Pétursson og Þorbergur Ingi Jónsson hafa hlaupið hraðar í Laugavegshlaupinu. Bruatarmet Þorbergs frá árinu 2015 er 3:59:13 klukkutímar. Bretinn Andrew Douglas varð í 2. sæti karla á 4:12:57 og í þriðja sæti varð Stefán Pálsson á 4:17:22.
Hlaup Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri KA - Afturelding | Þurfa sigur til að halda í við toppliðið Njarðvík - Valur | Geta Njarðvíkingar rétt skipið af? KR - Ármann | Halda KR-ingar sigurgöngunni áfram? Höttur - ÍR | Hörkuleikur fyrir Austan Grindavík - Stjarnan | Stórliðin þurfa sigur Lillestrøm - Real Sociedad | Evrópu Orri mætir til Noregs Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Matthías hættur hjá Val Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Ömurleg menning hjá Man. Utd Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Er skrefareglan dauð í NBA? Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Sjá meira