Sport

Felldi tár og sendi fingur­koss til himna

Sindri Sverrisson skrifar
Linda Noskova sendi fingurkoss til himna um leið og hún þakkaði mömmu sinni fyrir allt sem hún gerði fyrir hana.
Linda Noskova sendi fingurkoss til himna um leið og hún þakkaði mömmu sinni fyrir allt sem hún gerði fyrir hana. Getty/Matthew Stockman

Linda Nosková varð yngsta konan í fimmtán ár til þess að vinna Wimbledon-mótið í tennis í gærkvöld. Eftir sigurinn sendi hún fingurkoss til himna og þakkaði mömmu sinni sérstaklega, en hún féll frá í aðdraganda Wimbledon-mótsins fyrir tveimur árum.

Nosková vann frábæran sigur í tékkneskum úrslitaleik í gær, gegn vinkonu sinni Karolinu Muchová, og vann þar með risamót í fyrsta sinn.

Fjölskylda hennar var á svæðinu og Nosková þakkaði henni og öðrum sem átt hafa þátt í hennar velgengni, en hún vildi líka þakka Ivönu móður sinni sérstaklega fyrir. Hún lést fyrir tveimur árum eftir langa baráttu við krabbamein.

„Það er ein manneskja í viðbót sem ég vil þakka og það er mamma mín. Ég stæði svo sannarlega ekki hér án hennar, svo takk fyrir,“ sagði Nosková áður en hún horfði til himins og sendi þá fingurkoss. Tilfinningarnar báru hana svo ofurliði í kjölfarið.

„Ég græt venjulega ekki, þetta er ekki í lagi fyrir mig! Ég hef notið þessara tveggja vikna svo mikið, öll sorgartárin, öll gleðitárin, allur svitinn og blóðið sem lagt var í þetta, þetta var allt þess virði. Ég mun svo sannarlega aldrei gleyma þessum tveimur vikum,“ sagði Nosková í sigurræðu sinni.

Nosková er yngsta konan til að sigra á Wimbledon síðan landa hennar Petra Kvitová gerði það árið 2011. Kvitová var einmitt á vellinum í gær og sá Nosková svara fyrir sig eftir að hafa kastað frá sér tækifærum til sigurs í annarri lotu.

„Þetta er ótrúleg tilfinning, í dag, en allir þessir leikir hafa verið svo líkamlega og andlega erfiðir,“ sagði Nosková og beindi svo orðum sínum til Muchová. Þær hafa oft æft saman og jafnvel spilað saman í tvíliðaleik á Ólympíuleikunum í París 2024.

„Karo, þú lést mig svo sannarlega hafa fyrir þessu, ég fyrirgef þér þetta í þetta eina skipti. Eins og þú sagðir, við erum vinkonur, ég er svo glöð að hafa getað spilað minn fyrsta risamótsúrslitaleik með þér,“ sagði Nosková.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×