Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar 15. júlí 2026 12:30 Flestir eru á faraldsfæti þessar vikurnar að elta góða veðrið sem er aðeins misskipt milli landshluta. Stærsta ferðahelgin er komandi Verslunarmannahelgi, þar sem margir landsmenn leggja leið sína í sveitir landsins, yfir heiðar og um fjallvegi á leið í sumarbústað, útilegu eða heimsókn til fjölskyldu og vina. Á þessum árstíma eigum við líka meiri samskipti við eitt af einkennum íslenskrar náttúru og sveitalífs en ella, sauðfé á beit. Fyrir flesta eru kindurnar einfaldlega hluti af íslensku sumri. Þær sjást í hlíðum, á afréttum og víða meðfram vegum. Flest okkar hugsum eflaust ekki mikið út í það, enda eru þær hluti af landslaginu. En á bak við hverja kind er bóndi. Sumarið er mikilvægasti tími ársins Þegar lömbin fara með mæðrum sínum í sumarhaga tekur við sá hluti ársins sem mótar gæði íslenska lambakjötsins. Þar ganga þau frjáls um og nærast á fjölbreyttum gróðri, jurtum og lyngi. Það er þessi sumarbeit sem hefur gert íslenskt lambakjöt að þeirri afurð sem það er í dag. Það er hluti af búskaparháttum sem hafa fylgt þjóðinni frá upphafi byggðar og eru enn órjúfanlegur hluti af íslenskri matarmenningu. Nokkrar sekúndur geta skipt sköpum Sú staðreynd að sauðfé gengur frjálst um beitilönd landsins þýðir líka að það verður stundum á vegi okkar. Víða fara þjóðvegir um beitarlönd sauðfjár og eru ógirtir. Þá geta kindurnar staðið kyrrar við vegkantinn og hlaupið af stað með litlum fyrirvara, ásamt því að lömb fylgja mæðrum sínum og bregðast hratt við ef þær hreyfa sig. Þess vegna geta aðstæður breyst á örfáum sekúndum. Undanfarnar vikur hefur verið fjallað um þetta í fjölmiðlum. Þar hefur komið fram að lögreglu berast reglulega tilkynningar um sauðfé sem ekið er á yfir sumarmánuðina og að enn gerist það of oft að ekki sé látið vita þegar slík óhöpp verða. Þetta er eitthvað sem við getum öll hjálpast að við að breyta. Ef óhapp verður Þótt enginn leggi af stað með það í huga að keyra á kind þá gera slysin sjaldnast boð á undan sér. Ef ekið er á kind er mikilvægt að stöðva og hafa samband við 112. Þannig er hægt að tryggja að viðeigandi ferli fari af stað og að bóndi fái upplýsingar um það sem gerst hefur. Berum virðingu fyrir landinu og menningu sveitanna Við höfum oft talað um mikilvægi þess að þekkja uppruna matarins okkar, en það á líka við um lífið sem er á bak við hann. Sauðkindin hefur fylgt okkur frá upphafi byggðar á Íslandi. Hún hefur mótað sveitir landsins, matarhefðir og samfélög víða um land. Hún er hluti af þeirri sögu sem við segjum gestum okkar og hluti af þeirri arfleifð sem við viljum varðveita. Þegar við ökum um sveitir landsins á sumrin erum við gestir í því umhverfi þar sem sauðféð dvelur stærstan hluta ársins. Gefum okkur meiri tíma í ferðalagi. Ef það er kind í vegkanti þá skulum við hægja á ferðinni og reikna með að fleiri kindur séu á svæðinu. Þannig sýnum við aðgát og getum fækkað slysum og gert ferðalagið öruggara fyrir alla og það skiptir höfuðmáli. Höfundur er formaður deildar sauðfjárbænda innan Bændasamtaka Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sauðfé Landbúnaður Umferð Umferðaröryggi Dýr Eyjólfur Ingvi Bjarnason Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar