„Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Freyja Þórisdóttir skrifar 16. júlí 2026 10:01 Fyrri tónleikarnir verða fimmtudaginn tólfta nóvember og þar flytja meðlimir plötuna Kings Of Metal í heild sinni. Seinni tónleikarnir falla heppilega, eða ekki, á föstudaginn þrettánda nóvember. Þá verður platan Fighting The World flutt frá upphafi til enda. Magic Circle Entertainment Þungarokkshljómsveitin Manowar snýr til Íslands í annað sinn í nóvember þessa árs og heldur tvenna tónleika í Hörpu, en sveitin er sem stendur á tónleikaferðalagi um heiminn. Uppselt var á tónleika Manowar í Reykjavík síðasta sumar en meðal þeirra sem lögðu leið sína í salinn Silfurberg var Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu en þar er einnig haft eftir málmhausnum Þorsteini Kolbeinssyni, sem hefur síðustu ár skipulagt keppnina Wacken Metal Battle, að sveitin hafi verið yfir sig hrifin af Íslandi í síðustu heimsókn sinni. „Til að gera langa sögu stutta þá varð sveitin hreinlega ástfangin af landi og þjóð og frá því að þeir sneru til baka eftir síðustu heimsókn höfum við verið að vinna að því að koma þeim til landsins aftur.“ Manowar hefur um áratugaskeið verið meðal áhrifamestu sveita í klassísku þungarokki og er þekkt fyrir háværa tónleika og stórbrotna sviðsframkomu.Magic Circle Entertainment Aðdáendur hljómsveitarinnar um allan heim kalla sig „Her ódauðlegra“ (á ensku Army of Immortals) en þeir eru þónokkrir hérlendis og hinn íslenski her má eiga von á stálregni og eyðileggingu ef marka má orð Joey De Maio, bassaleikara hljómsveitarinnar. „Þetta land er byggt á harðfylgi og þrjósku (determination and defiance). Það er einmitt þessi andi sem rennur í æðum íslensku ódauðlegu aðdáenda okkar,“ er haft eftir Joey í tilkynningunni. „Fyrsta reynsla okkar af Reykjavík skildi alla viðstadda eftir hungraða í meira. Að snúa aftur til að flytja „Kings Of Metal“ og „Fighting The World“ í heild sinni er svar okkar við kalli þeirra. Við munum standa hlið við hlið með okkar Ódauðlegu og leysa úr læðingi stálregn og eyðingu.“ Háværasta hljómsveitin árið '84 Plöturnar tvær sem hann nefnir verða fluttar í heild sinni, hvor um sig fær sér tónleikakvöld. Tónleikagestir á fimmtudeginum munu fá að upplifa „Kings Of Metal“ í heild sinni á tónleikum. Föstudagskvöldið verður svo helgað plötunni „Fighting The World“ frá upphafi til enda. Bæði kvöldin verða jafnframt hlaðin öðrum þungarokksslögurum frá ferli sveitarinnar. Á yfirstandandi tónleikaferðalagi hefur Manowar meðal annars tilkynnt tónleika á Ítalíu, í Slóvakíu, Ungverjalandi og Póllandi, áður en sveitin heldur áfram til fleiri landa í Evrópu.Magic Circle Entertainment Manowar var stofnuð árið 1980 af bassaleikaranum Joey DeMaio og hefur söngvarinn Eric Adams verið í sveitinni frá upphafi, en í gegnum árin hafa meðal annars gítarleikararnir Ross the Boss, David Shankle og Karl Logan, auk trommaranna Donnie Hamzik, Scott Columbus og Anders Johansson, skipað hljómsveitina. Í dag eru Joey DeMaio og Eric Adams einu upprunalegu meðlimirnir sem eftir eru, en með þeim leika gítarleikarinn Michael Angelo Batio og trommarinn Dave Chedrick. Árið 1984 rataði hljómsveitin í Heimsmetabók Guinness sem útnefndi Manowar háværustu hljómsveitina fyrir tónleika sem þeir héldu sama ár. Það er því líklega eitthvað til í tilkynningunni þar sem stendur að í nóvember muni „undirstaða Hörpu hristast undir hreinum og ómenguðum krafti hins eina sanna málms.“ Miðasala á tónleikana er þegar hafin á tix.is og harpa.is. Hér fyrir neðan má sjá lifandi flutning sveitarinnar á laginu Warriors Of The World í brasilíu árið 2015.
Tónleikar á Íslandi Harpa Mest lesið Hvað veistu um… textana hans Bubba? Lífið Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Gagnrýni Sögufrægt verslunarhús til sölu Lífið Lúpína verði fyrsta stopp fyrir veisluna eða afmælið Tíska og hönnun Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Lífið Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi Lífið Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lífið Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Lífið samstarf Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Tónlist „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Lífið Fleiri fréttir Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Highway 61 Revisited fagnar 61 árs afmæli Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Kanye treður upp í Rússlandi Hip-hop sveitin Tha Alkaholiks í Iðnó í október Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Heiður að endurvekja falda perlu Palla Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Suki dásamar Laufeyju Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Sjá meira