Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Hólmfríður Gísladóttir skrifar 21. júlí 2026 12:03 Íslenski fáninn var málaður yfir regnbogafánann. Vísir Þrátt fyrir yfirlýsingar um að regnbogafáninn verði aftur málaður á tröppurnar við Grafarvogskirkju, eftir að málað var yfir hann og öll málning svo hreinsuð af tröppunum, er ekkert fast í hendi.
Prófílmynd Grafarvogskirkju var uppfærð í síðustu viku og sýnir nú regnbogalitaðar tröppurnar, sem sumir virðast hafa skilið sem svo að búið væri að mála þær aftur. Þær eru hins vegar ennþá steinsteypugráar. Fréttastofa ræddi við Örnu Ýrr Sigurðardóttur sóknarprest nú fyrir stundu og spurði hvort ekki stæði enn til að mála tröppurnar aftur í regnbogalitunum. Arna sagði málið verða rætt á sóknarefndarfundi í dag. Það virðist þannig ekki alveg víst að tröppurnar verði málaðar á ný. „Það var stefnan og er,“ svaraði Arna. „En það eru alls konar sjónarmið sem þarf að ræða.“ Spurð að því hvaða sjónarmið það væru sem kæmu til álita nefndi Arna slysahættu. „Þetta er sleipt,“ sagði hún. Þess ber að geta að áður hafði verið gefið út á Facebook-síðu kirkjunnar að regnboginn myndi sannarlega rata aftur á tröppurnar. „Við erum stolt af Pride fánanum í tröppunum okkar og munum á næstu dögum vinda okkur í að mála hann aftur á tröppurnar og þiggjum sannarlega hjálp frá ykkur við það,“ sagði í Facebook-færslu.
Þjóðkirkjan Íslenski fáninn Hinsegin Reykjavík Mest lesið „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Fleiri fréttir „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Sjá meira