„Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Agnar Már Másson skrifar 21. júlí 2026 21:41 Pétur H. Ármansson, arkítekt og sviðsstjóri á húsverndarsviðs hjá Minjastofnun, er hver manna kunnastur um byggingarlist Einars Sveinssonar. Vísir/Lýður Valberg Sviðsstjóri hjá Minjastofnun biður borgina um að flýta sér hægt áður en hún rífur niður áhorfendastúkuna í Laugardalslaug. Stúkan hafi mikið varðveislugildi út frá menningarsögu Íslands, en hann tekur þó fram að mannvirkið verði ekki endurbyggt nema því verði gefið nýtt hlutverk. Hann vill að Laugardalslaugin verði áfram skilgreind sem almenningsmannvirki fyrir borgarbúa, en verði ekki „eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“.
Tæplega sex áratugir eru frá því að Laugardalslaug var vígð í lok júlí 1968 og sömuleiðis áhorfendastúkan við laugina. Þar gátu tvö þúsund manns fylgst með sundköppum þeytast fram og til baka um fimmtíu metra sundbrautina, en er leið á síðustu áratugi 20. aldar var stúkan aðallega notuð af sólþyrstum sundlaugargestum á blíðviðrisdögum. Eftir aldamót hefur hún aftur á móti lítið sem ekkert verið notuð en nú virðist áhorfendastúkan gengin sér til húðar, þar sem viðhald hefur verið lítið afar lítið. Pottasvæðinu og gufubaðinu við stúkuna var lokað í byrjun júlímánaðar eftir að áhættumat leiddi í ljós að ástand hennar væri verulega bágborið vegna skemmda og ástandið jafnvel talið hættulegt. Skrifstofustjóri hjá Reykjavíkurborg sagði við Vísi í júlí að nauðsynlegt væri að rífa stúkuna sem fyrst. Ekki væri hægt að gera við stúkuna, en hugmyndavinna væri þegar hafin um endurnýjun mannvirkja í lauginni. Þó að mannvirkið njóti ekki formlegrar verndar, þar sem það er byggt eftir 1923, telur Pétur H. Ármannsson, sviðsstjóri hjá Minjastofnun, engu að síður að stúkan hafi mikið varðveislugildi – ýmist út frá menningarsögu, íþróttasögu og byggingarsögu – auk þess sem stúkan sé áberandi kennileiti í Laugardalnum. Sömuleiðis skapi hún skjól þegar blási úr norðanátt. Sjá einnig: Blaðamaður Vísis skoðaði stúkuna árði 2019. „Það sem ég myndi segja við borgaryfirvöld er að flýta sér hægt í þessu máli. Það þarf að gera ítarlega greiningu á steypunni í mannvirkinu – hvort hún sé óviðgerðarhæf eða hvað sé hægt að gera. En það er ljóst að þetta mannvirki verður ekki endurbyggt nema því verði fundið einhvers konar breytt hlutverk.“ Stúkan, sem var hönnuð af Einari Sveinssyni arkitekt, er einstök í útliti og hún var reist á tímum sem Íslendingar höfðu glæsta íþróttadrauma, enda reis Laugardalshöll og íþróttaleikvangurinn á svipuðum tíma í dalnum. Pétur er manna kunnastur byggingum Einars Sveinssonar og hann svarar játandi að borgaryfirvöld hafi vanrækt viðhald við stúkuna. „Já, það er augljóst að viðhaldi mannvirkisins hefur ekki verið sinnt og þess vegna er komið ástand eins og raun ber vitni.“ Björn Leifsson, stofnandi World Class, rifjaði upp í viðtali á Bítinu á Bylgjunni í gærmorgun hugmyndir sínar um hótel og sundlaugagarð á svæði Laugardalslaugar og sagðist vona að nýr meirihluti í borgarstjórn tæki betur í slíka uppbyggingu heldur en síðustu meirihlutar. Spurður út í þessar hugmyndir svarar Pétur: „Mér finnst mjög mikilvægt að Laugardalslaugin verði áfram skilgreind sem almenningsmannvirki fyrir borgarbúa. Hvort það geti gerst í einhvers konar samspili við einkarekstur er eitthvað sem er úrlausnarefni en mér finnst mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife.“
Skipulagsmál Reykjavík Sund Sundlaugar og baðlón Arkitektúr Tengdar fréttir „Hver sofnaði á verðinum?“ Stúkan í Laugardalslaug er að hruni komin, samkvæmt nýrri skýrslu, og algjör óvissa ríkir um framtíð hennar. Íbúi í hverfinu til áratuga segir sárt að horfa upp á þetta merka kennileiti Laugardalsins grotna niður og vill draga stjórnvöld til ábyrgðar. 8. júní 2024 14:01 Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Tekin hefur verið ákvörðun um að loka fimm heitum pottum sem næst eru stúkunni við Laugardalslaug í Reykjavík. Jafnframt verður öll starfsemi færð úr stúkunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 2. júlí 2026 16:36 Leyndardómar Laugardalsstúku Í stúkunni við Laugardalslaug er að finna dularfull skúmaskot og leyndardómsfulla hluti. 27. mars 2018 09:15 Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Fleiri fréttir Hvorki ákærðu né brotaþoli könnuðust við fíkniefnabrask Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Sjá meira
„Hver sofnaði á verðinum?“ Stúkan í Laugardalslaug er að hruni komin, samkvæmt nýrri skýrslu, og algjör óvissa ríkir um framtíð hennar. Íbúi í hverfinu til áratuga segir sárt að horfa upp á þetta merka kennileiti Laugardalsins grotna niður og vill draga stjórnvöld til ábyrgðar. 8. júní 2024 14:01
Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Tekin hefur verið ákvörðun um að loka fimm heitum pottum sem næst eru stúkunni við Laugardalslaug í Reykjavík. Jafnframt verður öll starfsemi færð úr stúkunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 2. júlí 2026 16:36
Leyndardómar Laugardalsstúku Í stúkunni við Laugardalslaug er að finna dularfull skúmaskot og leyndardómsfulla hluti. 27. mars 2018 09:15