„Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Freyja Þórisdóttir skrifar 22. júlí 2026 07:18 Lllja Birgisdóttir er nýjasti viðmælandi Litlu hlutanna. Listakona sem er ein þeirra í teyminu sem skapar ilmheim Fichersunds segir uppvöxt sinn hafa mikil áhrif á hennar listrænu sýn. Hún endurspeglist í allri list sem hún skapi, hvort sem það sé ljósmyndun, ilmvatnagerð eða annað. Ilmur geti kallað fram löngu gleymdar minningar. „
Ég myndi segja að kannski svona af því að ég er með ADHD þá er ég alveg ótrúlega næm á alla skynjun: hitastig, lykt og lýsingu,“ útskýrir Lilja Birgisdóttir og bætir við að „allt hefur þetta áhrif“. Lilja er listakona, ljósmyndari og hluti af teyminu sem rekur Fichersund. Loksins látið verða af hugmyndinni Í nýjasta þætti af Litlu hlutunum segist hún hafa þurft að læra að sleppa taki af áhyggjum um það hvað öðrum finnist um hana og hennar sköpun, með aldrinum og þroskanum takist ætlunarverkið smátt og smátt. Manni takist að vera sama. Hún einblíni oftar en ekki á litlu hlutina sem hún segist vera næm fyrir, mögulega vegna ADHD-sins, og að hún sé þakklát fyrir að finna fyrir öllum áferðum og ilmum. Ljósmyndanámið sem hún sótti hafi opnað augu hennar fyrir því að það séu rammar víðs vegar og að stundum, svo sem í heimildaljósmyndun, þurfi að vinna með ljótleika hluta. Lilja rekur Fichersund, ilmgerð og verslun, ásamt systkinum sínum en í seinni tíð bættust makar í hópinn. Hún segir þau öll vera listafólk en á mismunandi sviðum: tónlist, myndlist, ljósmyndun og líkt og fyrr segir ilmgerð. „Draumurinn okkar var alltaf að geta unnið saman, við vorum einhvern veginn öll alltaf að vinna hvert í sínu horninu í alls konar verkefnum,“ segir hún en svo hafi þessi hugmynd komið upp aftur og aftur, iðulega yfir rauðvínsglasi í mat hjá móður þeirra. Verður að staldra aðeins við Þegar Jónsi í Sigur Rós, bróðir Lilju, hafi svo flutt erlendis hafi stúdíópláss losnað þarna í gamla grjótaþorpinu og þau hin ákveðið að láta slag standa. Þau hafi opnað með aðeins einn ilm til sölu, tónlist í gangi og list á veggjunum. „Við vinnum rosa mikið með ilmi út frá minningum okkar af því að alast upp hérna á Íslandi.“ Lilja segir þurfa að muna að hægja á sér og staldra stundum aðeins við, sérstaklega í því hraða neyslusamfélagi sem fólk á að venjast í dag. Nauðsynlegt sé að leyfa sé að melta og vinna úr öllu áreitinu, upplifunum og reynslu sem maður lendi í. „Einföld leið er að kveikja aðeins á skynfærunum,“ segir hún og bætir við „aðeins að stoppa og hugsa: hvernig er lyktin og hvaða hljóð heyri ég? Sonur minn er að leika sér þarna inni og hundurinn að klóra sér í rassinum.“ Þátturinn er hér í spilaranum í heild sinni en í honum ræðir Lilja meðal annars um sólarlag sem hún sá speglast í drullupolli og varð seinna eitt aðalverkið á sýningu. Töfrunum í hversdeginum sé auðið að gerast ef fólk muni að hlusta á innsæið og skynfærin. Lítil augnablik sem virðist mögulega einskis verð geti haft áhrif á mann ef maður tekur eftir þeim. Hulunni svipt af Hjá Fichersundi er líkt og fyrr segir mikið unnið með æsku barnanna og þau rifja saman upp stundir sem geta orðið innblástur að ilmi. Þegar maður finni ákveðna lykt geti flóð minninga brostið fram fyrirvaralaust. „Ég man til dæmis alltaf eftir hátíðleikanum í kringum það þegar pabbi setti á sig ilm. Hann vann í smiðju, var vélsmiður, og á hátíðarstundum, svo sem á jólunum, þreif hann af sér smiðjuna, dressaði sig upp og þá kom ilmur af heitri sturtunni. Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma,“ rifjar Lilja upp. Það sé oft lýjandi að vinna að nýjum ilm en svo þegar hugmyndavinnan, rannsóknarvinnan og allt komi saman á réttan hátt sé eins og hulu sé svipt af. Þá sjái maður allt skýrt, viti nákvæmlega hvað maður ætlar að gera og veðji þá áfram og vinni fram á nætur. „Það er ótrúlega fallegt móment,“ segir Lilja. Það sé mikilvægt að dvelja ekki um of við skoðanir annarra, manni þurfi að geta verið sama um hvort fólki líki við mann eða sköðunarverk manns. „Það eru litlu hlutirnir sem skapa töfrana í þessum þunglamalega hversdegi sem við búum í eins og ef maður stoppar og finnur ilminn í kringum sig eða þefar af hárinu á barninu sínu,“ segir Lilja.
Litlu hlutirnir Tónlist Reykjavík Myndlist Ljósmyndun Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Fleiri fréttir Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið Sjá meira