Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Áróra L Davíðsdóttir skrifar 22. júlí 2026 19:31 Ásgeir segir að með tímanum hafi Hlíðarkaup orðið hans annað heimili. Hlíðarkaup Ásgeir Björgvin Einarsson opnaði verslunina Hlíðarkaup á Sauðárkróki fyrir 35 árum. Nú hefur hann ákveðið að selja verslunina en segir ákvörðunina ekki hafa verið auðvelda. Nýir eigendur taki við á föstudaginn og hann voni að Hlíðarkaup verði áfram sá staður þar sem fólk komi ekki aðeins til að versla heldur einnig til að hittast, spjalla og eiga góða stund. „
Ég hef selt Hlíðarkaup. Ákvörðunin var ekki auðveld og henni fylgir vissulega söknuður en umfram allt þó þakklæti – þakklæti fyrir að hafa tekist að reka þetta fyrirtæki og þjónað þessu einstaka samfélagi í þrjá og hálfan áratug, segir Ásgeir í Facebook-færslu en hún hefur fengið rúmlega þúsund læk og nærri þrjú hundruð ummæli þar sem viðskiptavinir þakka honum fyrir þjónustuna og samverustundirnar í gegnum árin. Hann segir markmið og leiðarljós sitt hafa verið að reka góða verslun með verð og þjónustu í fyrirrúmi. Forréttindi séu að hafa fengið að umgangast viðskiptavini sína en hann hafi ekki gert sér grein fyrir hve stóran sess starfsfólk og viðskiptavinir verslunarinnar myndu eiga í lífi sínu. Með tímanum hafi Hlíðarkaup orðið hans annað heimili. „Í gegnum árin höfum við hist ótal sinnum við afgreiðsluborðið. Við höfum rætt um gleði og sorgir, veðrið, heimsmálin og íþróttir, um börnin sem uxu úr grasi og barnabörnin sem komu í heiminn. Við höfum hlegið saman, stundum haft áhyggjur saman en ávallt kvatt með brosi og hlýjum orðum. Það sem hófst sem viðskipti og varð smám saman að sterkum tengslum sem byggðust á trausti, virðingu og vináttu,“ skrifar Ásgeir. „Ég vil þakka ykkur öllum, hverju og einu, fyrir að hafa staðið við bakið á mér öll þessi ár, fyrir traustið sem þið hafið sýnt mér og fyrir öll litlu augnablikin sem hafa orðið að ógleymanlegum minningum.“ Hann hafi verið afar lánsamur með starfsfólk og segir enga verslun verða betri en fólkið sem þar starfi. „Starfsfólkið hefur tekið á móti viðskiptavinum af alúð, sýnt umhyggju og átt stóran þátt í að gera verslunina að meiru en bara stað þar sem fólk kaupir inn – frekar að stað þar sem allir þekkja alla, hittast og spjalla. Fyrir þetta vil ég færa öllu því góða fólki sem hefur starfað hjá mér í gegnum árin mitt innilegasta þakklæti. Ég mun sakna daglegrar samveru, hlátursins, samheldninnar og allra þeirra augnablika sem gerðu hvern vinnudag sérstakan.“
Skagafjörður Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sjá meira