Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Magnús Jochum Pálsson skrifar 24. júlí 2026 11:11 Weird Al Yankovic neitaði að koma fram á grínhátíðinni í Ríad. Getty Grínistinn Weird Al Yankovic segist hafa neitað að koma fram á grínhátíðinni í Ríad í Sádi-Arabíu síðasta haust þrátt fyrir að honum hafi boðist sjö stafa tala að launum. Hátíðin vakti mikið umtal og gagnrýni en fjöldi heimsfrægra grínista kom þar fram.
Yankovic ræddi hátíðina í tengslum við ákvörðun sína um að hætta við að taka þátt í auglýsingu fyrir hugbúnað þegar hann uppgötvaði að hún væri búin til með gervigreind. Honum þætti leiðinlegt að slík boð. „Ég vildi óska að fólk myndi bjóða mér verkefni sem mér líður ekki illa með að samþykkja,“ sagði Yankovic í samtali við TribLive í vikunni. „Ég veit ekki hvort ég hef minnst á þetta nokkurs staðar en mér var boðið á grínhátíðina í Ríad sem er eitthvað sem ég vildi augljóslega ekki gera. Þau buðu mér, ég ætla ekki að segja hve mikið, sjö stafa tölu fyrir eitt uppistand sem er miklu meira en ég hef nokkurn tímann fengið fyrir uppistand á ævinni. En ég gat bara ekki tekið þátt í því,“ sagði hann. Grínistinn Dave Chappelle var meðal þeirra sem kom fram á hátíðinni.Getty/Tim Nwachukwu Ríkisstyrkta grínhátíðin í Ríad fór fram síðasta haust og komu þar fram nöfn á borð við Dave Chappelle, Bill Burr, Louis C.K., Pete Davidson og Aziz Ansari. Hátíðin var gagnrýnd af mörgum vegna tengsla hennar við ríkisstjórn Sádi-Arabíu og krúnuprinsinn Mohammed bin Salman. Meðal grínista sem neituðu að koma fram voru Mike Birbiglia, Shane Gillis, Stavros Halkias, Leslie Liao og Atsuko Okatsuka. „Ég er ekki að dissa neinn sem tók við peningnum því ég er viss um að allir sem fóru þangað fengu fullt af peningum. Ég er viss um að þeir höfðu sínar eigin ástæður og réttlætingar fyrir því að gera þetta. En ég er alveg að vinna nógu mikið til að þurfa ekki að taka hvaða upphæð sem er ef hún lætur mér líða illa,“ sagði hann. Bransamiðillinn Variety hefur eftir heimildarmönnum að launatékkar þeirra sem komu fram á hátíðinni hafi verið að andvirði 500 þúsund dala upp í 1,6 milljón dala (frá 60 milljónum króna upp í 200 milljónir).
Sádi-Arabía Grín og gaman Bandaríkin Mest lesið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Lífið Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Menning Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira