„Stærstu fréttir ferilsins“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. júlí 2026 09:01 Andrea Kolbeinsdóttir var heldur betur kát með símtalið sem hún fékk á dögunum. Vísir/Bjarni Hlaupakonan Andrea Kolbeinsdóttir hefur lengi verið í hópi bestu langhlaupara landsins og unnið mörg hlaup á ferlinum. Í vikunni fékk hún frábærar fréttir sem hún sagði frá á skemmtilegan hátt á samfélagsmiðlum.
Andrea er nýbyrjuð að segja frá lífi sínu á YouTube-síðu þar sem hún leyfir fylgjendum sínum að sjá bak við tjöldin þegar hún er að æfa og keppa. Hún fer yfir líf sitt sem langhlaupari, sýnir frá æfingum og öðru tengdu. Hún lýsir einnig persónulegri upplifun sinni af því erfiða og því skemmtilega í lífi langhlaupara. Nýjasta YouTube-myndbandið byrjar á skemmtilegan hátt því hún gat sagt frá frábærum fréttum af sér. Andrea sagði ekki aðeins fréttirnar heldur sýndi einnig myndband af sér þegar hún var nýbúin að fá þær nokkrum dögum fyrr. Brosti út að eyrum „Það er fimmtudagur en ég verð að byrja á því að sýna ykkur hvað gerðist á mánudeginum,“ sagði Andrea og sýndi upptöku með sér. Það var mjög skemmtilegt að sjá gleði hennar og upplifun að sjá hana tjá sig þegar hún var nýbúin að skella á eftir þetta góða símtal. „Ég bara varð að taka þetta bara strax upp í mómentinu. Ég var að klára mjög skemmtilegt símtal og þetta eru bara stærstu fréttir ferilsins,“ sagði Andrea og brosti út að eyrum. „Ég var bara að samþykkja að skrifa undir alþjóðlegan atvinnumannasamning við Salamon [Íþróttavörumerkið] þótt ég eigi enn þá eftir að skrifa undir hann,“ sagði Andrea. Það er ekki auðvelt fjárhagslega að helga sér íþrótt sína og það mátti sjá á íslensku hlaupakonunni hvað það var mikill léttir að fá smá slíkan samning sem auðveldar allt utanumhald í næstu framtíð. Búinn að vera draumur svo lengi „Þetta er búinn að vera draumur svo lengi. Ég fór náttúrulega í þessar búðir í janúar í Salomon-höfuðstöðvarnar í Annecy og var svo óðgeðslega vongóð eftir það um að eitthvað myndi gerast. Ég lenti svolítið á milli og fékk ekki alvöru samning heldur bara fatnað og ekki fjárstuðning eða neitt slíkt,“ sagði Andrea. „Nú er það orðinn veruleikinn,“ sagði Andrea hreinlega syngjandi af gleði og bauð upp á dans að auki. Hún skipti aftur í nútímann og fór aðeins betur yfir þetta. „Ég hef aldrei verið jafn glöð með eitthvað og er ekki ennþá alveg að trúa þessu. Þannig að það eru allavega mjög spennandi tímar framundan,“ sagði Andrea og hélt síðan áfram með YouTube-þáttinn sinn. Andrea glímir við meiðsli þessa dagana og tók þess vegna ekki þátt í Laugarvegshlaupinu sem hún hefur unnið oft. Hún ræðir æfingarnar og hvernig hún hlustaði ekki alveg nógu vel á sjúkraþjálfarann sinn og fór fram úr sér með því að gera of mikið of snemma. Það má horfa á nýjasta þáttinn hennar hér fyrir neðan. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=-dttCdyKtX4">watch on YouTube</a>
Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Fleiri fréttir Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Stór varða í langþráðri endurkomu Patriks: „Eitt skref í einu“ Afmælisdagurinn sem aldrei kom Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA Þessir eru tilnefndir sem bestu fótboltamenn heims „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Pablo Escobar útlitið er heitt hjá Betis Hjartaaðgerð McTominay gekk vel Mourinho fékk úðara að gjöf Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Treyjur Liverpool taka breytingum Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Ruglaðist á mótherja og komst að því í miðju viðtali Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ætlar að taka sér pásu út tímabilið Sjá meira