Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Jakob Bjarnar skrifar 28. júlí 2026 10:16 Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir að sér hafi brugðið þegar hann sá hversu hátt hlutfall ungs fólks, einkum karlmanna um tvítugt, voru að þiggja fjárhagsaðstoð bæjarins. vísir/lýður Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Reykjanesbæjar var á línunni í Bítinu í morgun og upplýsti þar að óvenju margir ungir einstaklingar njóti fjárhagsaðstoðar á Suðurnesjum. Hann segir vísbendingar um að þetta sé ekki bara svona í Reykjanesbæ.
Vilhjálmur er nú, skömmu eftir sveitarstjórnarkosningar, í óðaönn að taka til í fjármálum bæjarins og vinda ofan af ýmsu því sem hann telur óráðsíu í opinberum rekstri. „Grunntekjur sveitarfélagsins eru í útsvari og fasteignagjöldum. Svo kemur inn í það jöfnunarsjóður og einskiptistekjur sem eru bæði gatnagerðargjöld og byggingarréttargjald. Við boðuðum það í okkar hundrað daga áætlun og höfum talað skýrt um það allan tímann að við ætluðum að standa fyrir einni mestu skattalækkun sem hefur orðið á sveitarstjórnarstiginu um langan tíma, leyfi ég mér að fullyrða. Við ætlum að afnema innviðagjöld sem sett hafa verið á hér í Reykjanesbæ. Við ætlum ekki að hafa nein lóða- eða innviðagjöld og erum að vinna í að afnema þau. Þetta er rót verðbólguvandans og hægt á allri uppbyggingu.“ Þannig ætla Vilhjálmur og ný bæjarstjórn að bjóða fjölskyldur og fyrirtæki velkomin til Reykjanesbæjar. Þá eru breytingar fyrirhugaðar í félagsþjónustunni. „Það sem kom mér á óvart og mér brá er hversu hátt hlutfall ungs fólks, sérstaklega ungra karlmanna, er að njóta fjárhagsaðstoðar. Menn um tvítugt sem hafa ekki verið á vinnumarkaði og eru komnir á fjárhagsaðstoð. Ég ætla að skoða það hvort þetta sé svona almennt um landið – ég hef fengið vísbendingar um að þetta sé ekki bara svona hjá okkur.“ Vilhjálmur segir þau hjá bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ komin í mikla vinnu við að skoða hvernig hægt er að koma á virkniúrræðum innan bæjarins. „Okkur langar að fegra bæinn og erum með fjölbreytt störf hjá sveitarfélaginu. Við ætlum að aðstoða fólk þannig. Það er ekki gott ef fólk festist í fátækragildru, hefur ekki tilgang og festist á fjárhagsaðstoð. Við munum gera allt sem við getum til að hjálpa þeim til sjálfshjálpar, fá störf og koma þeim í virkni.“
Reykjanesbær Félagsmál Atvinnurekendur Rekstur hins opinbera Bítið Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira