Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson skrifar 29. júlí 2026 17:02 Sem gamall Sjálfstæðismaður finnst mér ég eiga ekkert pólitískt bakland lengur. Sá Sjálfstæðisflokkur sem ég studdi lagði áherslu á frjálslyndi, opið markaðshagkerfi, samkeppni og að skapa skilyrði fyrir aukinni velsæld allra landsmanna. Í dag finnst mér flokkurinn hafa fjarlægst þau grunngildi. Ég velti því oft fyrir mér hvað hafi valdið þessari þróun. Hvers vegna virðist flokkurinn leggja svo mikla áherslu á að verja hagsmuni stórútgerðar og þeirra fyrirtækja sem njóta góðs af fákeppni, á sama tíma og sífellt fleiri heimili og fyrirtæki glíma við gríðarlegan framfærslukostnað og háa vexti? Forystumenn Sjálfstæðisflokksins kvarta yfir minnkandi fylgi, en virðast um leið útiloka stóran hluta kjósenda með málflutningi sínum. Kannast flokkurinn ekki við það ofurverðlag sem íslensk heimili búa við? Sér hann ekki þá fákeppni sem ríkir á mörgum mörkuðum, þar sem verð hækkar reglulega án þess að neytendur hafi raunverulegt val? Hvernig getur flokkur sem kenndi sig við frjálsa samkeppni sætt sig við stöðu þar sem fá fyrirtæki ráða stórum hluta matvörumarkaðarins, olíumarkaðarins og bankakerfisins? Er ekki einmitt hlutverk frjálslynds flokks að stuðla að aukinni samkeppni, lægra verði og fleiri tækifærum fyrir neytendur og fyrirtæki?Sama á við um vextina. Er flokkurinn virkilega sáttur við að íslensk heimili og fyrirtæki greiði með þeim hæstu vöxtum sem þekkjast í nágrannalöndum okkar? Á meðan ungt fólk á sífellt erfiðara með að eignast húsnæði og fyrirtæki glíma við aukinn fjármagnskostnað virðist umræðan of oft snúast um að verja sérhagsmuni fárra í stað hagsmuna almennings. Ég starfa í ferðaþjónustu og heyri daglega frá ferðamönnum hversu dýrt þeim finnst Ísland vera. Þeir spyrja hvernig almenningur hafi efni á að búa við þetta verðlag. Það er spurning sem stjórnmálamenn ættu einnig að spyrja sig. Ferðaþjónustan er ein mikilvægasta atvinnugrein landsins og samkeppnishæfni hennar byggist meðal annars á því að verðlag fari ekki úr böndunum. Við búum jafnframt við mikla óvissu í alþjóðamálum. Gervigreind er að breyta vinnumarkaði, öfgaflokkar sækja víða í sig veðrið og efnahagsleg óvissa er mikil. Í slíkum heimi finnst mér ekki sjálfgefið að hafna því að ræða möguleika Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Samningaviðræður eru ekki það sama og aðild, en þær geta verið leið til að afla upplýsinga og meta kosti og galla. Er ekki skynsamlegt að skoða alla valkosti þegar framtíðin er jafn ófyrirsjáanleg og raun ber vitni? Mér finnst stærstu hagsmunamál Íslands í dag vera að ná niður verðlagi og vöxtum og auka samkeppni. Við þurfum að ryðja hindrunum úr vegi fyrir nýja aðila á matvörumarkaði, olíumarkaði og í bankastarfsemi. Þar tel ég að aðild að ESB geti verið hluti af lausninni. Þess vegna á ég erfitt með að þekkja minn gamla Sjálfstæðisflokk. Flokk sem áður talaði fyrir frelsi einstaklinganna, frjálsri samkeppni og opnum mörkuðum. Í dag finnst mér hann of oft verja sérhagsmuni þeirra sem þegar standa sterkastir. Það eru ekki þau gildi sem urðu til þess að ég studdi flokkinn á sínum tíma. Höfundur er viðskiptafræðingur og eigandi ferðaþjónustufyrirtækis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar