Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Hólmfríður Gísladóttir skrifar 29. júlí 2026 10:27 Stjórn íbúasamtaka í Mosfellsdal er uggandi yfir þeim umhverfisáhrifum sem atvikið mun mögulega valda. Vísir/Lýður Stjórn Víghóls, íbúasamtaka Mosfellsdals, segist verulega brugðið yfir því að hundruðir minka hafi sloppið út í Dalsbúi. Mosfellsdalur sé gróðursæl náttúruparadís, þar sem sé að finna fjölskrúðugt fuglalíf sem nú steðjar ógn að.
Frá þessu greinir í yfirlýsingu frá stjórninni. Þar segir að fjölmargir íbúar haldi hænur og aðra fugla sem nú þurfi að halda inni. „Stjórn Víghóls mun í samvinnu við bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ vinna að því að miðla upplýsingum til íbúa um stöðu mála eftir því sem þær liggja fyrir. Einnig bendum við Dalbúum á að fylgjast með opinberri vefsíðu og Facebook-síðu Mosfellsbæjar,“ segir í yfirlýsingunni. Þá segir að stjórnin krefjist þess að gripið verði til allra mögulegra ráðstafana til að draga sem mest úr fyrirsjáanlegum skaða. „Við förum fram á það að hagsmunir náttúrunnar verði settir ofar fjárhagslegum hagsmunum búsins. Ef ekki verður allt reynt til að lágmarka skaðann óttumst við að minkafaraldur verði viðvarandi í Dalnum okkar næstu árin og jafnvel áratugina. Það myndi hafa varanleg áhrif á samfélagið okkar allra, dýra og manna.“ Hér fyrir neðan má finna yfirlýsinguna í heild: „Stjórn Víghóls, íbúasamtaka í Mosfellsdal, er líkt og öllum íbúum í Dalnum verulega brugðið yfir þeim tíðindum að hundruð minka hafi sloppið út úr loðdýrabúinu Dalsbúi. Mosfelldalur er gróðursæl náttúruparadís og þar er fjölskrúðugt fuglalíf sem nú steðjar mikil ógn að. Fjölmörg okkar halda hænur og aðra fugla sem nú þarf að loka rækilega inni. Stjórn Víghóls mun í samvinnu við bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ vinna að því að miðla upplýsingum til íbúa um stöðu mála eftir því sem þær liggja fyrir. Einnig bendum við Dalbúum á að fylgjast með opinberri vefsíðu og Facebook-síðu Mosfellsbæjar. Stjórn Víghóls krefst þess að gripið verði til allra mögulegra ráðstafana til að draga sem mest úr þeim fyrirséða skaða á náttúruna sem af þessum atburði mun hljótast. Við förum fram á það að hagsmunir náttúrunnar verði settir ofar fjárhagslegum hagsmunum búsins. Ef ekki verður allt reynt til að lágmarka skaðann óttumst við að minkafaraldur verði viðvarandi í Dalnum okkar næstu árin og jafnvel áratugina. Það myndi hafa varanleg áhrif á samfélagið okkar allra, dýra og manna.“
Mosfellsbær Dýr Loðdýrarækt Minkum sleppt í Mosfellsdal Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira